Skip to main content

Doktorsvörn í læknavísindum - Jenna Huld Eysteinsdóttir

Doktorsvörn í læknavísindum - Jenna Huld Eysteinsdóttir - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
8. desember 2017 9:00 til 11:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 8. desember ver Jenna Huld Eysteinsdóttir doktorsritgerð sína í læknavísindum við Læknadeild Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið: Áhrif Bláa Lóns meðferðar á psoriasis miðað við hefðbundna UVB ljósameðferð. The effect of balneophototherapy in the Blue Lagoon in Iceland on psoriasis compared with phototherapy alone.       

Andmælendur eru dr. Menno De Rie, prófessor við húðsjúkdómadeild Háskólans í Amsterdam, og dr. Olle Larkö, prófessor í húð- og kynsjúkdómum við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg.

Umsjónarkennari var Jón Hjaltalín Ólafsson, dósent við Læknadeild Háskóla Íslands, og leiðbeinandi var Bárður Sigurgeirsson, aðjunkt við sömu deild. Að auki sátu í doktorsnefnd Björn Rúnar Lúðvíksson, prófessor við Læknadeild, Vilhjálmur Rafnsson, prófessor emeritus við Læknadeild, og dr. Bernt Lindelöf, prófessor við húðsjúkdómadeild Karolinska sjúkrahússins í Stokkhólmi.

Engilbert Sigurðsson, deildarforseti og prófessor við Læknadeild Háskóla Íslands, stjórnar athöfninni sem fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands og hefst kl. 9.00.

Ágrip af rannsókn

Sóri (e. psoriasis) er langvinnur bólgusjúkdómur í húð þar sem T frumur leika veigamikið hlutverk í meingerðinni, sérstaklega Th1/Tc1 og Th17/Tc17 frumur. Fyrri rannsóknir benda til þess að samsett meðferð með böðun í Bláa Lóninu (BL) og ljósameðferð sé áhrifarík meðferð gegn sóra. Markmið rannsóknarinnar var að meta klínísk, sálfélagsleg, vefjafræðileg og ónæmisfræðileg áhrif samsettrar meðferðar í BL á sórasjúklinga samanborið við hefðbundna ljósameðferð með slembiraðaðri framskyggnri samanburðarrannsókn. Tólf sórasjúklingar tóku þátt í forrannsókn þar sem ónæmisfræðilegar aðferðir voru prófaðar fyrir stærri rannsóknina þar sem 68 sórasjúklingar tóku þátt og slembiraðað í þrjá meðferðarhópa: 1) göngudeildarmeðferð í BL, 2) innlögn í BL, og 3) hefðbundin ljósameðferð. Niðurstöður sýndu að 68-73% sjúklinga sem fengu samsetta meðferð í BL náðu meira en 75% klínískum bata eftir 6 vikna meðferð, samanborið við 16% sjúklinga sem fengu hefðbundna ljósameðferð. Sálfélagslegur og vefjafræðilegur bati var í góðri fylgni við klínískan bata ásamt því að það þurfti UVB geislun til að ná þessum bata. Marktæk fækkun var á húðmerktum (CLA) T eitilfrumum sem tjá húðsækna/húðfesti viðtaka (CCR4, CCR10 og CD103) í blóði sórasjúklinga sem fengu samsetta meðferð. Einnig var marktæk fækkun á Th17/Tc17 og Th22/Tc22 frumum í blóði sórasjúklinga í öllum meðferðarhópunum. Þessar niðurstöður staðfesta að samsett meðferð í BL er klínískt áhrifaríkari meðferð en hefðbundin ljósameðferð, og gefur til kynna að sóri Th17/Tc17 og Th22/Tc22 miðlaður bólgusjúkdómur, ekki Th1/Tc1 miðlaður. Ekki hefur áður verið sýnt fram á að húðsækni viðtakarnir CCR4, CCR10 og húðfesti viðtakinn CD103 nær hverfi í blóði sóra sjúklinga eftir meðferð.

Um doktorsefnið

Jenna Huld Eysteinsdóttir er fædd 1976. Hún lauk stúdentsprófi af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskóla Vesturlands 1996, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 2005 og sérnámi í húð- og kynsjúkdómalækningum við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg 2014. Jenna Huld hóf doktorsnám við Læknadeild Háskóla Íslands árið 2008 og hefur frá árinu 2015 starfað á Húðlæknastöðinni Smáratorgi. Jenna Huld er dóttir Eysteins Bjarnasonar, fyrrverandi bónda, og Katrínar Ragnheiðar Hjálmarsdóttur sérkennara. Börn hennar eru Katrín Rós Bárðardóttir, Hlynur Þór Bárðarson og Dagur Þór Bárðarson.

Jenna Huld Eysteinsdóttir

Doktorsvörn í læknavísindum - Jenna Huld Eysteinsdóttir