Skip to main content

Doktorsvörn Guðrúnar Ragnarsdóttur

Doktorsvörn Guðrúnar Ragnarsdóttur - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
24. apríl 2018 13:00 til 15:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur Háskóla Íslands

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Guðrún Ragnarsdóttir ver doktorsritgerð sína í menntavísindum við Kennaradeild, Menntavísindasviðs Háskóla Íslands:

Upplifun og reynsla skólastjórnenda af breytingum í íslenskum framhaldsskólum samtímans. Gagnvirk áhrif einstaklinga, hópa og félagskerfa

Andmælendur eru dr. Elisabet Nihlfors, prófessor við Uppsalaháskóla, og dr. Monica Johansson dósent við Gautaborgarháskóla.

Leiðbeinandi var dr. Ingólfur Ásgeir Jóhannesson, prófessor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands og meðleiðbeinandi dr. Jón Torfi Jónasson, prófessor emeritus við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.
Auk þeirra sat í doktorsnefnd dr. Lisbeth Lundahl, prófessor við Háskólann í Umeå Svíþjóð.

Baldur Sigurðsson, forseti Kennaradeildar Menntavísindasviðs, stjórnar athöfninni.

Allir velkomnir

Vörnin fer fram þriðjudaginn 24. apríl kl. 13.00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Um verkefnið

Doktorsritgerðin fjallar um sýn skólastjórnenda í níu íslenskum framhaldsskólum á samspili einstaklinga, hópa og félagskerfa sem draga úr breytingum eða hvetja til þeirra. Ritgerðin fæst einnig við upplifun skólastjórnenda á hlutverki sínu, völdum og getu við að innleiða breytingar og þeim áskorunum sem fylgja því ferli. Tekin voru viðtöl við 21 stjórnanda í níu framhaldsskólum víðs vegar um landið. Viðtölin eru rædd í ljósi kenninga um stofnanir (institutions) annars vegar og skipulagsheildir (organizations) hins vegar. Ennfremur út frá kenningum um leiðtoga stofnana og skipulagsheilda, kenningum um ólík viðbrögð skóla við ytri kröfum um breytingar og kenningum um hvort breytingar nái í gegn eða ekki. Niðurstöðurnar sýna flókið mynstur gagnkvæmra áhrifa á breytingar, milli einstaklinga, hópa og félagskerfa, úr bæði ytra og innra umhverfi skólanna. Viðmælendur nefndu fjölmörg dæmi sem sýndu að flest áhrifaöflin styrkja ríkjandi hefðir innan skólakerfisins, gildi og viðmið. Þessi stýring, sem rökstutt er að megi kalla stofnanastýringu, er sterkt afl sem á stóran þátt í að hægja á breytingum eða jafnvel hindra þær. Á hinn bóginn lýstu skólastjórnendur því einnig hvernig hópar, innan og utan skólanna, hvöttu til breytinga og komu af stað vissu losi í skólunum (sem líkja má við afstofnanavæðingu) sem ýtti undir að nýjar hugmyndir flæddu á milli framhaldsskólanna. Mesta áskorun viðmælenda við innleiðingu menntabreytinga tengdist inntaki náms. Viðmælendur sögðust hafa takmörkuð völd til að hafa áhrif þar á. Þeir lýstu því aftur á móti hvernig þeir hefðu umtalsverða möguleika til forystu þegar kemur að kennsluháttum og námsmati. Þátttökuskólarnir virkjuðu með ólíkum hætti þá stefnu sem boðuð var með lögunum 2008 og aðalnámskrá 2011 sem bendir til að margar sjálfstætt starfandi einingar séu ráðandi innan skólanna. Skólastjórnendur fjölluðu jafnframt um það hvernig þeir brugðust við margvíslegri hvatningu til breytinga með mismunandi hætti. Lýsingar voru ýmist einkennandi fyrir leiðtoga stofnana eða skipulagsheilda, eftir viðfangsefnum hverju sinni, en viðbrögðin réðust einnig af ráðandi menningu innan skólanna og utanaðkomandi þrýstingi.   

Um doktorsefnið

Guðrún Ragnarsdóttir er lífeindafræðingur með kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastig. Einnig er hún með  diplómagráðu í opinberri stjórnsýslu og meistaragráðu í lýðheilsufræðum. Guðrún hefur starfað sem kennari á þremur skólastigum eftir að hún lauk grunnnámi, en lengst af starfaði hún sem framhaldsskólakennari og millistjórnandi í Borgarholtsskóla. Guðrún hefur tekið að sér fjölbreytt verkefni á sviði menntunar fyrir Evrópuráðið frá árinu 2008. Guðrún stundaði einnig rannsóknir á líðan og starfsumhverfi kennara, stjórnenda og náms- og starfsráðgjafa í íslenskum framhaldsskólum á tímabilinu 2008–2012. Í doktorsnámi sínu hefur Guðrún verið þátttakandi í rannsóknarhópi um starfshætti í framhaldsskólum sem aftur er hluti af norræna öndvegissetrinu JustEd. Nú starfar Guðrún sem aðjúnkt og verkefnastjóri starfsþróunar á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Guðrún er fædd árið 1971 í Neskaupstað en býr nú í Reykjavík. Guðrún er gift Jóni Bender framkvæmdastjóra og eiga þau þrjú börn: Elísabetu Soffíu Bender klæðskeranema, Ragnar Þór Bender stjórnmálafræðinema og Sófus Mána Bender grunnskólanema

 

Vörnin fer fram þriðjudaginn 24. apríl kl. 13.00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands.

Doktorsvörn Guðrúnar Ragnarsdóttur