Skip to main content
2. janúar 2019

Blómgunartími á norðurslóðum styttist með hlýnandi loftslagi

""

Plöntutegundir á heimskautasvæðum, sem að öllu jöfnu blómgast fremur seint að sumri, bregðast sterkar við hlýnun loftslags og flýta blómgun meir en tegundir sem blómgast snemma. Það leiðir til styttingar á heildarblómgunartíma plöntusamfélaganna sem aftur getur haft áhrif á afkomu ýmissa dýrategunda á svæðunum. Þetta kemur fram í vísindagrein eftir 38 plöntuvistfræðinga sem birtist í hinu virta vísindatímariti Nature Ecology and Evolution í desember síðastliðnum.

Í greininni er fjallað um rannsókn vísindahópsins sem byggist á athugunum á blómgunartíma 253 tegunda frá 23 mismunandi stöðum í heimskauta- og fjallatúndru víðs vegar um heim yfir allt að 20 ára tímabil. Meðal höfunda greinarinnar er Ingibjörg Svala Jónsdóttir, prófessor við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Íslands, en hún hefur um árabil stundað rannsóknir á gróðurbreytingum, bæði á Íslandi og Svalbarða.

Rannsóknir hópsins leiða í ljós að ein skýrustu viðbrögð plantna við hlýnandi loftslagi á svæðum með sterk árstíðaskipti, eins á heimskautatúndrunni, er að blómgun hefst fyrr að vori og eru þessi viðbrögð sterkari í fjalla- og heimskautatúndru en víðast annars staðar. Plöntutegundirnar bregðast hins vegar ekki allar eins við hlýnun og sumar þeirra hefja blómgun fyrr en aðrar. Þannig sýna niðurstöðurnar að þær plöntur sem jafnan blómgast seint flýta blómgun sinni meira en þær sem blómgast snemma eftir því sem loftslag hlýnar.
 
Höfundar greinarinnar benda á að samanlagt hafi þetta í för með sér styttri blómgunartíma og það geti haft veruleg áhrif á samspil plantna og dýra í túndruvistkerfum því margar dýrategundir eru háðar blómgunartímabilinu, þar á  meðal tegundir frjóbera meðal skordýra sem gætu misst af hápunkti blómgunar. 

Þá er einnig vert að benda á að niðurstöður rannsóknarinnar eru þveröfugar við niðurstöður rannsókna sem gerðar hafa verið á suðlægari slóðum. Þær sýna að tegundir sem blómgast snemma eru almennt viðkvæmari fyrir hlýnun en þær sem blómgast seint. 

Greinin í Nature Ecology and Evoloution

 

Ingibjörg Svala Jónsdóttir