Skip to main content
17. janúar 2023

Á þriðja tug fagnar brautskráningu í handleiðslufræðum

Á þriðja tug fagnar brautskráningu í handleiðslufræðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tuttugu og sex nemendur fögnuðu á dögunum námslokum í þriggja missera diplómanámi á meistarastigi í handleiðslufræðum við Félagsráðgjafardeild HÍ í lokahófi á Háskólatorgi. Þetta er í annað skipti sem útskrifað er úr greininni en nemendahópurinn kemur úr afar fjölbreyttum greinum, m.a. guðfræði, hjúkrunarfræði, náms-og starfsráðgjöf og sálfræði auk félagsráðgjafar.

Mikil aðsókn var í námið og komust færri að en vildu. Námið er þverfaglegt og spannar fræðilegan grunn handleiðslufræða, klínískan þjálfunarhluta og sjálfsvinnu. Umsjónarkennari námsins var Steinunn Hrafnsdóttir, prófessor við Félagsráðgjafardeild, en að skipulagningu og framkvæmd þess komu einnig Sigrún Júlíusdóttir, prófessor emerita við sömu deild, og Díana Ósk Óskarsdóttir, guðfræðingur og handleiðari. 

Nemendur, sem taka við útskriftarskírteinum sínum á brautskráningu Háskólans 17. febrúar nk., eru fagfólk með 4-5 ára háskólamenntun til löggiltra starfsréttinda. Hafa þau öll trausta reynslu af faglegu starfi og af eigin handleiðslu.
 

Útskriftarhópurinn ásamt skipuleggjendum námsins og handleiðurum.