Skip to main content

Kennsludagar - Tengsl og samskipti í hópum

Kennsludagar - Tengsl og samskipti í hópum - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. mars 2024 9:00 til 15. mars 2024 15:00
Hvar 

Víða á háskólasvæðinu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Kennsluakademía opinberu háskólanna í samstarfi við Kennslumiðstöð Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri halda Kennsludaga vikuna 11.-15. mars næstkomandi. Markmiðið er að efla samtal um mikilvægi samskipta, kennslu og kennsluþróun á háskólastigi.

Margvíslegir og fjölbreyttir viðburðir verða í boði á borð við vinnustofu, fyrirlestra, kennsluheimsóknir og kennslukaffi í samstarfi við Stúdentaráð.

Vefurinn „góð kennsla“ verður opnaður og kynntur.

Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands verður með erindi um mikilvægi félagslegrar samvistar.

Fræðimaðurinn dr. Peter Felten frá Elon háskóla í Bandaríkjunum kemur til landsins. Felten er prófessor í sagnfræði, framkvæmdastjóri miðstöðvar um virkni í námi og kennslu sem og aðstoðarforstöðumaður kennslumiðstöðvar við sama skóla. Hann mun meðal annars stýra vinnustofu sem byggist á alþjóðlegri áherslu á fræðimennsku í kennslu (Scholarship of teaching and learning eða SoTL) og pallborði í Hátíðarsal.

Nánar um ofangreinda viðburði:

Þriðjudagur, 12. mars, kl: 9-11:

Vinnustofa: SoTL með Peter Felten.

Vinnustofa um fræðimennsku í námi og kennslu. Setberg – hús kennslunnar. Stofa: Suðurberg, 3.hæð.

Fyrir hvern: alla kennara. Skráning fyrir HÍ fólk.

Miðvikudagur, 13. mars, kl: 14-16.

Fyrirlestur og pallborð: Tengslarík menntun með Peter Felten. Hátíðasalur Háskóla Íslands.

Fyrir hvern: Allt starfsfólk, nemendur og almenning. Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem hafa áhuga á kennslu og námi á háskólastigi og eru nemendur sérstaklega hvattir til að mæta. Að fyrirlestrinum loknum verða pallborðsumræður um mikilvægi tengsla í menntun í íslensku háskólakerfi.

Beint streymi verður af viðburðinum.

Fimmtudagur, 14. mars, kl: 12-13.

Erindi: Af hverju er mikilvægt að fólk komi saman í skólanum? - Mikilvægi félagslegrar samvistar fyrir fólk, fræði og samfélag,

Viðar Halldórsson, prófessor í félagsfræði. Setberg – hús kennslunnar. Stofa: Suðurberg, 3. hæð.

Skráning fyrir HÍ fólk.

Föstudagur, 15. mars, kl: 10.

Kaffispjall: Með nemendum í Bóksölu stúdenta.

Allir nemendur og kennarar velkomnir.

Föstudagur, 15. mars, kl: 12-13.

Viðburður/hybrid fundur: Háskólinn á Akureyri: Lifandi samskipti í fjarnámi.

Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu M101 á Sólborg í Háskólanum á Akureyri. Þau sem eru stödd á staðnum geta sótt fyrirlesturinn í eigin persónu auk þess sem fyrirlestrinum verður streymt.

Slóð á streymi.

Flytjendur: Auðbjörg Björnsdóttir, forstöðumaður Kennslu- og upplýsingatæknimiðstöðvar Háskólans á Akureyri, Helgi Freyr Hafþórsson, verkefnastjóri margmiðlunar og Valgerður Ósk Einarsdóttir, kennsluráðgjafi.

Streymt verður úr Setbergi – húsi kennslunnar í Suðurbergi á 3ju hæð. 

Þvert á vikuna:

Kíktu í kennslustund!

Viðburður alla vikuna - skráning fyrir HÍ fólk hér.

Það getur verið býsna fróðlegt að líta inn í kennslu til samstarfskennara og fá nýjar hugmyndir.

Á Kennsludögum gefst kennurum kostur á að koma í heimsókn í tíma til samkennara sinna og taka þátt í samtali um kennslu og kennsluþróun.

Á Kennsludögum verður fjöldi spennandi viðburða en einn þeirra er helgaður heimsókn í kennslustund undir heitinu Kíktu í kennslustund! Viðburðir Kennsludaga verða auglýstir sérstaklega hér á heimasíðu HÍ.

Kennsludagar