Skip to main content

Grunnnám - hvað svo?

Grunnnám - hvað svo?  - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
21. mars 2023 11:30 til 13:30
Hvar 

Háskólatorg

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Hvað er í boði í Háskóla Íslands að loknu grunnnámi?

  • Getur nemandi með BA-gráðu í mannfræði farið í talmeinafræði?
  • Getur nemandi með BS-gráðu í hjúkrunarfræði farið í framhaldsnám í guðfræði?
  • Getur nemandi með BS-gráðu í tölvunarfræði farið í framhaldsnám í leikskólakennarafræði?
  • Hverjar eru forkröfurnar fyrir hverja og eina námsleið í framhaldsnámi við Háskóla Íslands?

Sérfræðingar deilda og fræðasviða Háskóla Íslands veita svör við þessum spurningum og mörgum fleiri á Háskólatorgi þriðjudaginn 21. mars milli kl. 11.30 og 13.30.

Enn fremur verða náms- og starfsráðgjafar á staðnum og veita ráðgjöf. Háskóli Íslands er í samstarfi við yfir 400 háskóla um allan heim og sérfræðingar frá Alþjóðasviði kynna fjölbreytt tækifæri til skiptináms og starfsþjálfunar.

Viðburðurinn er ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.

Komdu og kynntu þér ótal möguleika á framhaldsnámi.

Þá er boðið upp á kynningafundi eða innlit í tíma á völdum framhaldsnámsleiðum dagana 20.- 24. mars.

Umsóknarfrestur um framhaldsnám við Háskóla Íslands er til 15. apríl.

Grunnnám hvað svo? Viðburður ætlaður öllum þeim sem hyggja á framhaldsnám í Háskóla Íslands.

Grunnnám - hvað svo?