Skip to main content

Fundaröð um tjáningarfrelsi – 2. Ábyrgð hýsingaraðila, gagnageymd og lögbann á tjáningu.

 Fundaröð um tjáningarfrelsi – 2. Ábyrgð hýsingaraðila, gagnageymd og lögbann á tjáningu. - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
14. nóvember 2018 12:00 til 13:15
Hvar 

Lögberg

101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Ábyrgð hýsingaraðila, gagnageymd fjarskiptafyrirtækja og lögbann sem tæki til takmörkunar á tjáningu er annar fundurinn af þremur í fundaröðinni Hvernig eflum við best tjáningarfrelsi?

Í tilefni af starfi nefndar forsætisáðherra um umbætur á löggjöf á sviði tjáningar-, fjölmiðla og upplýsingafrelsis, sem nýlega skilaði af sér fimm lagafrumvörpum á þessu sviði og hefur frekari frumvörp í vinnslu, boða Mannréttindastofnun Háskóla Íslands, Orator, félag laganema, og ELSA á Íslandi til fundaraðar um efni frumvarpanna og það hvernig tjáningarfrelsi verði best eflt á Íslandi. Fundirnir verða í hádeginu þrjá miðvikudaga í röð, frá 7.– 21.nóvember.  

Ábyrgð hýsingaraðila og gagnageymd fjarskiptafyrirtækja. Fyrirlesari: Hörður Helgi Helgason, lögmaður

Lögbann sem tæki til takmörkunar á tjáningu.  Fyrirlesari: Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður

Stjórnandi: Fjölnir Daði Georgsson, funda- og menningarmálastjóri Orator.

Sigríður Rut Júlíusdóttir, lögmaður. Hörður Helgi Helgason, lögmaður. 

 Fundaröð um tjáningarfrelsi – 2. Ábyrgð hýsingaraðila, gagnageymd og lögbann á tjáningu.