Umsóknarfrestur er til 20. október 2025 Tilgangur Rannsóknasjóðs Háskóla Íslands er að efla rannsóknastarfsemi í Háskólanum. Stjórn Rannsóknasjóðs er skipuð formönnum fimm sjálfstæðra fagráða, einu fyrir hvert fræðasvið. Rektor skipar formann fyrir hvert fagráð og formann stjórnar Rannsóknasjóðs, sem ekki á sæti í fagráðum. Miðað er við að styrkþegar sem hlutu styrk í fyrra til 2-3 ára sæki ekki um nýjan styrk fyrr en í lok styrktímabilisins. Þeir sem sækja um til 2-3 ára og fá vilyrði fyrir styrk, fá hann í umbeðinn árafjölda. Ekki þarf lengur að skila inn árlegum framvinduskýrslum heldur er aðeins farið fram á lokaskýrslu í lok styrktímabilsins.Auglýsing, viðmið og vinnureglur við úthlutun árið 2026 Auglýsing Viðmið við úthlutun 2026 Vinnureglur við úthlutun 2026 Umsóknareyðublað og upplýsingar til umsækjenda Ekki er nauðsynlegt að skila inn ritaskrá enda byggist mat á birtingum úr framtali starfa (miðað er við árin 2017-2022). Lokaskýrslu og fylgiskjöl skal senda til: rannsoknasjodir@hi.is Umsóknarfrestur er til 15.október 2024. Leiðbeiningar Lokaskýrsla - eyðublað (word skjal) (skal senda til rannsoknasjodir@hi.is) Upplýsingar um laun aðstoðarmanna Umsóknareyðublað Reglur Rannsóknasjóðs Reglur Rannsóknasjóðs er að finna í 75. grein reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009. Umsýsla styrkja Styrkir úr verkefnahluta Rannsóknasjóðs eru færðir yfir á það verkefnisnúmer sem umsækjendur gefa upp í umsókn. Ef stofna á nýtt númer þá skal snúa sér til skrifstofu viðkomandi fræðasviðs. Styrkir til þeirra umsækjenda sem hafa bókhald sitt á stofnunum Háskólans sem hafa sjálfstæðan fjárhag eru færðir til viðkomandi stofnunar sem sér um yfirfærslu til styrkþega. Eftirfarandi starfseiningar innan stjórnsýslu Háskóla Íslands sjá um umsýslu einstakra styrkþáttað: Laun aðstoðarmanna - Kjara- og launadeild Greiðsla kostnaðar og aðkeyptar þjónustu - Fjármálasvið Styrkþegar sem hafa bókhald sitt hjá Háskóla Íslands eru beðnir að snúa sér til viðkomandi starfseiningar vegna afgreiðslu styrkja. Þeir sem hafa bókhald sitt á stofnunum er bent á skrifstofu stofnunar. Í Uglu er að finna eyðublað vegna greiðslu til aðstoðarmanna. Fyrri úthlutanir Upplýsingar um úthlutun fyrri ára, frá 2018-2025, má finna hér Vinsamlega hafið samband við Vísinda-og nýsköpunarsvið ef óskað er eftir upplýsingum um eldri úthlutanir. Algengar spurningar Geta gestakennarar sótt um í sjóðinn? Nei, gestakennarar hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar, rannsóknalektorar og aðjúnktar með rannsóknaskyldu við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum. Geta verkefnastjórar hjá HÍ sótt um í sjóðinn? Nei, verkefnastjórar hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar, rannsóknalektorar og aðjúnktar með rannsóknaskyldu við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum. Geta nýdoktorar hjá HÍ sótt um í sjóðinn? Nei, nýdoktorar hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar, rannsóknalektorar og aðjúnktar með rannsóknaskyldu við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum. Geta aðjúnkt II eða aðjúnkt III hjá HÍ sótt um í sjóðinn? Nei, aðjúnkt II og III hjá HÍ hafa ekki rétt á að sækja um í sjóðinn. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar, rannsóknalektorar og aðjúnktar með rannsóknaskyldu við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum. Skiptir starfshlutfall máli til að geta sótt um í sjóðinn? Nei, starfshlutfall skiptir ekki máli. Prófessorar, dósentar, lektorar, rannsóknaprófessorar, rannsóknadósentar, rannsóknalektorar og aðjúnktar með rannsóknaskyldur við Háskóla Íslands geta sótt fé úr sjóðnum. Er hægt að sækja um styrk fyrir annað verkefni, það er, að vera með styrki fyrir tvö (eða fleiri) aðskilin verkefni? Nei, það er eingöngu hægt að vera með einn styrk í gangi hverju sinni. Skila þarf lokaskýrslu um notkun fyrri styrkja til að geta sótt um að nýju. Tengt efni The University of Iceland Research fund Doktorsstyrkir Háskóla Íslands Tækjakaupasjóður facebooklinkedintwitter