Skip to main content

Markaðs- og samskiptasvið

Markaðs- og samskiptasvið - á vefsíðu Háskóla Íslands

Markaðs- og samskiptasvið Háskóla Íslands (MARKSAM) hefur heildarumsjón með öllu markaðs- og samskiptastarfi HÍ og samhæfir slíkt starf innan allra eininga skólans. Sviðið sér um framleiðslu á kynningarefni skólans í heild, stýrir vísindamiðlun og efnismiðlun á ytri vefi og samfélagsmiðla auk samskipta við fjölmiðla. MARKSAM sér um viðhald og nýsmíði í ytri vefjum skólans auk þess að reka myndveitu sem helgar sig kvikmyndagerð og ljósmyndun í þágu allra eininga HÍ.

MARKSAM hefur leitt fjölda verkefna sem hlotið af bæði innlend og alþjóðleg verðlaun. Í því sambandi má nefna Vísindamiðlunarverðlaun RANNÍS (2024, 2023, 2022, 2019, 2018,2013 og 2012), Samskiptaverðlaun EUPRIO (2012) auk tilnefningar til gullverðlauna AFO (2013) fyrir gerð vísindaþáttaraðar fyrir sjónvarp.  

Almennur þjónustutími er frá 9:00 - 15:00
Staðsetning: Aðalbygging, stofur 231 og 207
Netfang: marksam@hi.is
Tengiliðir við fjölmiðla: Jón Örn Guðbjartsson (jonorn@hi.is) s. 6990662/ Björn Gíslason (bgisla@hi.is) s. 8960876

Hlutverk Markaðs- og samskiptasviðs HÍ

Hlutverk MARKSAM að miðla upplýsingum um fjölbreytta og mikilvæga starfsemi Háskóla Íslands til allra landsmanna, m.a. á sviði kennslu, náms, rannsókna og nýsköpunar. Í því felst m.a.:

  • Kynning á fjölbreyttu námsframboði innan skólans.
  • Rekstur ytri vefja HÍ.
  • Að tryggja öfluga og einfalda leit á vef HÍ að námsleiðum við hæfi hvers og eins.
  • Að efla stafræna þjónustu við ytra og innra samfélag.
  • Að styðja við námsval með stafrænum lausnum.
  • Að standa fyrir fjölbreyttri vísindamiðlun til allra landsmanna.
  • Að auka vitund um gildi skólans og sýna hvernig starf hans hefur víðtæk og jákvæð samfélagsleg áhrif.
  • Að kynna hvernig vísindamenn og nemendur takast á við áskoranir samtímans.
  • Að auka tengsl og samræðu við önnur skólastig.
  • Að stuðla að auknu samstarfi við íslenskt samfélag, atvinnulíf og stofnanir.
  • Rekstur uglu, innri vefs HÍ, sem miðlar upplýsingum til starfsfólks HÍ.
  • A leiða allt kynningarstarf innan HÍ.
  • Að veita einingum innan HÍ þjónustu á sviði samskipta og markaðsmála.
  • Að tryggja að kynningar- og markaðsefni HÍ styðjist við öflugustu miðlunarleiðir og hafi samræmda og skýra ásjónu í anda stefnu skólans.
     
Tengt efni