Skip to main content
10. september 2015

Vaxandi áhugi á rannsóknum í smáríkjafræði

Stjórnmálafræðideild hefur um langt skeið sérhæft sig í rannsóknum og kennslu á smáríkjum. Í deildinni er boðið upp á viðbótardiplómanám í smáríkjafræðum þar sem lögð er áhersla á stöðu smáríkja í Evrópu með tilliti til Evrópusamrunans, en þó er stöðu smáríkja í alþjóðasamfélaginu einnig gerð góð skil. Þá hefur Rannsóknarsetur um smáríki, sem starfrækt er innan Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, skipað sér sess meðal fremstu rannsakenda á sviði smáríkjafræða, staðið fyrir fjölda alþjóðlegra ráðstefna og gefið út umtalsvert efni um smáríki. Setrið rekur einnig árlegan sumarskóla þar sem háskólanemar hvaðanæva úr heiminum setjast á skólabekk í Háskóla Íslands í tvær vikur og  fræðast um smáríki og stöðu þeirra í Evrópu.

Baldur Þórhallsson er nú staddur í Bilbao á Spáni þar sem hann flutti erindi á árlegri ráðstefnu UACES um  Evrópufræði. Á Spáni flutti hann einnig opnunarfyrirlestur, í gegnum Skype, á ráðstefnunni Small States in a Legal World sem fram fór í London í byrjun vikunnar. Var ráðstefnan haldin í tilefni opnunar nýs smáríkjaseturs við Queen Mary University of London sem sérhæfir sig í lögfræði og smáríkjum og hinum ýmsu lagalegu hliðum sem varða smáríki. Erindið sem Baldur flutti bar heitið „How do little frogs fly? Small states in the European Union and the Security Council of the United Nations“.

Það má því með sanni segja að rannsóknir og kennsla á sviði smáríkjafræða leiði Stjórnmálafræðideild víða og að rannsóknir í greininni, sem nú eru stundaðar í auknum mæli víðs vegar um heim, séu farnar að skila sér í framgangi og eflingu fagsins.

Baldur Þórhallsson
Baldur Þórhallsson