Skip to main content
21. júní 2021

Varði doktorsritgerð um vofulegar minningar

Varði doktorsritgerð um vofulegar minningar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Vera Knútsdóttir hefur varið doktorsritgerði í almennri bókmenntafræði við Íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin nefnist Spectral Memories of Icelandic Culture: Memory, Identity and the Haunted Imagination in Contemporary Art and Literature. Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn dr. Gunnþórunnar Guðmundsdóttur, prófessors við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd dr. Fionnuala Dillane, prófessor við University College í Dublin, og dr. Daisy Neijmann, aðjunkt við Háskóla Íslands.

Andmælendur við vörnina voru dr. Claire Lynch, dósent við Brunel háskóla í London, og dr. Emilie Pine, prófessor við University College í Dublin. Gauti Kristmannsson, varaforseti Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Auðarsal í Veröld 18. júní síðastliðinn. (Smellið hér til að skoða myndir frá vörninni).

Um rannsóknina

Í ritgerðinni rannsakar Vera vofulegar minningar í íslenskri menningu og skoðar flókið samspil minnis, sjálfsmyndar og reimleika í samtímabókmenntatextum og myndlistarverkum. Hún beitir hugtakinu „vofulegar“ til að skilgreina minningar sem af ólíkum ástæðum hafa gleymst, verið þaggaðar eða niðurbældar í sameiginlegri menningarvitund þjóðarinnar, en hafa opinberast aftur fyrir tilstilli samtímabókmennta og myndlistar. Vofufræði (e. spectrality theory) og verk franska heimspekingsins Jacques Derrida, Vofur Marx, eru upphafspunktur rannsóknarinnar með það að leiðarljósi að tengja vofuna við hugmyndir um minni og kenningar í menningarlegum minnisfræðum (e. cultural memory studies).

Um doktorinn

Vera Knútsdóttir lauk B.A.-prófi í almennri bókmenntafræði með frönsku sem aukagrein við Háskóla Íslands og meistaraprófi í bókmenntafræðum við Háskólann í Amsterdam. Hún býr í Kaupmannahöfn. 

Frá vinstri: Daisy Neijmann, Ólöf Garðarsdóttir, Vera Knútsdóttir, Gauti Kristmannsson og Gunnþórunn Guðmundsdóttir.