Skip to main content
2. mars 2020

Nýr norrænn gagnabanki á sviði stjórnarhátta fyrirtækja

Creditinfo og Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands taka höndum saman með norrænum viðskiptaháskólum og búa til norrænan gagnabanka á sviði stjórnarhátta fyrirtækja (e. corporate governance). Gagnabankinn mun styðja rannsakendur við að varpa ljósi á rekstur og stjórnarhætti norrænna fyrirtækja.

Gögnin eru einstök að því leyti að uppruni þeirra er úr margvíslegum gagnagrunnum frá ólíkum löndum og ná yfir áratugi. Það sem kallað hefur verið norræna módelið í stjórnarháttum verður til að mynda hægt að rannsaka með aðgengilegri hætti en áður. Center of Corporate Governance við Copenhagen Business School hýsir verkefnið og er einn viðskiptaháskóli frá hverju hinna norrænu ríkjanna samstarfsaðili. Akademískir starfsmenn þessara háskóla hafa aðgang að gagnabankankum svo og þeir rannsakendur sem eru hluti af tengslaneti fræðimanna á Norðurlöndum á sviði stjórnarhátta, Nordic Corporate Governance Network. Þröstur Olaf Sigurjónsson, lektor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, situr í stjórn norrænu samtakanna og veitir upplýsingar um verkefnið á olaf@hi.is.

„Við hjá Creditinfo teljum það mjög mikilvægt að styðja við rannsóknarstarf norrænu viðskiptaháskólanna á þennan hátt. Creditinfo hefur átt í góðu samstarfi við Háskóla Íslands undanfarin ár og það er ánægjulegt að koma að uppbyggingu á þessum samnorræna gagnabanka. Auknar rannsóknir og samanburður á atvinnulífinu á Norðurlöndum er mjög jákvæður fyrir þetta atvinnusvæði. Það er vonandi að gagnabankinn og aukið aðgengi að gögnum muni stuðla að því að fleiri nemendur feta þessa braut í sínu viðskiptanámi,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstöðumaður greiningar og ráðgjafar hjá Creditinfo. 
 

Þröstur Olaf Sigurjónsson og Gunnar Gunnarsson handsala nýtt samstarf Háskóla Íslands og Creditinfo