Heimir Hilmarsson hlaut viðurkenningu Ís-Forsa 2015

Samtök um rannsóknir í félagsráðgjöf, Ís-Forsa, eru hluti norrænna systursamtaka sem vinna að framgangi rannsókna og fagþróunar í félagsráðgjöf. Stjórn Ís-Forsa veitir árlega viðurkenningu fyrir framúrskarandi meistararitgerð á sviði velferðarmála. Sérstök nefnd metur ritgerðir sem tilnefndar eru af háskólakennurum. Að þessu sinni var viðurkenningin veitt á aðalfundi Ís-Forsa 21. maí 2015.
Sjö einstaklingar sem luku meistaraprófi í félagsráðgjöf árið 2015 með framúrskarandi árangri voru tilnefndir. Þau eru: Agnes Þorsteinsdóttir: Fangar sem afplána dóm fyrir ofbeldisbrot: Úrræði, Halla Dröfn Jónsdóttir: Stuðningsúrræði starfsmanna barnaverndar „Þetta er í raun bara það sem hefur alltaf verið gert“, Kolbrún Ýr Guðmundsdóttir: Starfsþjálfun í félagsráðgjöf „raunveruleikinn er bara allt öðruvísi“, Kristjana Gunnarsdóttir: Afdrif fólks sem hafur fengið fjárhagsaðstoð til framfærslu. Eftirfylgd og áhrifaþættir, Unnur Ósk Pálsdóttir: Þessi endalausa óvissa. Reynsla foreldra í greiðsluvanda, Sirrý Sif Sigurlaugardóttir: Gagnreyndar aðferðir við félagslega ráðgjöf í málefnum aldraðra, og Heimir Hilmarsson: Reynsla feðra sem ekki deila lögheimili með barni. „Þú átt engin börn“. Svo fór að Hilmar hlaut viðurkenningu Ís-Forsa að þessu sinni fyrir framúrskarandi meistararitgerð á sviði velferðarmála. Ritgerðirnar er að finna á Skemmunni.
Með veitingu viðurkenningarinnar vill stjórn Ís-Forsa stuðla að viðgangi framhaldsnáms á sviði velferðaþjónustu og að viðurkenning fyrir framúrskarandi framlag til rannsókna á meistarastigi geti orðið meistaranemum hvatning og stuðlað að vandaðri nýsköpun þekkingar.
Nánari upplýsingar veitir Steinunn Bergmann, formaður Ís-Forsa (netfang: steinunn@bvs.is auk þess sem vísað er á heimasíðuna www.isforsa.net). Fréttin er fengin af heimasíðu Ís-Forsa.

