Skip to main content

Frestað -Stríðsminjar - Öskjuhlíð - Með fróðleik í fararnesti

Frestað -Stríðsminjar - Öskjuhlíð - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
31. október 2020 11:00 til 13:30
Hvar 

Frá Perlunni Öskjuhlíð

Nánar 
Brottför frá Perlunni Öskjuhlíð.

Frestað um óákveðinn tíma vegna kórónuveirufaraldurs.

Leynileg neðanjarðarhús, skotbirgi, furðuleg listaverk, gull (eða glópagull öllu heldur), kanínur, tankar og trjákofar. Þetta er fátt eitt af því sem gerir Öskjuhlíðina að undraheimi sem ótrúlega gaman er að rannsaka. Í hlíðinni er líka vísir að skógi með miklu fuglalífi. Sagnfræðingar frá Háskóla Íslands ætla að leiða göngufólk um Öskjuhlíðina og veita innsýn í sögu svæðisins.

Gangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands, Með fróðleik í fararnesti. Þúsundir Íslendinga á öllum aldri hafa notið þess að halda í göngur með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands undanfarin ár og þegið fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans við nánast hvert fótmál. Göngurnar hafa löngu unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekkingu fólks, ekki síst ungmenna, á sama tíma og boðið er upp á holla og skemmtilega hreyfingu.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!

Leynileg neðanjarðarhús, skotbirgi, furðuleg listaverk, gull (eða glópagull öllu heldur), kanínur, tankar og trjákofar. Þetta er fátt eitt af því sem gerir Öskjuhlíðina að undraheimi sem ótrúlega gaman er að rannsaka.

Stríðsminjar - Öskjuhlíð - Með fróðleik í fararnesti