Skip to main content

Neisti í nýsköpun – Hvernig býr maður til rafmagnskappakstursbíl?

Neisti í nýsköpun – Hvernig býr maður til rafmagnskappakstursbíl? - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
1. október 2020 16:30 til 17:00
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasalur

Nánar 
Viðburðurinn er lokaður að sendur út í beinni útsendingu

Fulltúar Team Spark, kappakstursliðs Háskóla Íslands, fjalla um þá fjölbreyttu nýsköpun sem felst í því að þróa rafknúinn kappakstursbíl sem standast þarf strangar alþjóðlegar kröfur. Viðburðurinn er lokaður í ljósi samfélagsaðstæðna en streymt verður frá honum á vef og samfélagsmiðlum Háskóla Íslands. Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunarvikunni.

Team Spark liðið hefur verið starfrækt við Háskóla Íslands í nærri áratug og hefur ár hvert þróað nýjan, rafknúinn kappakstursbíl í góðri samvinnu við mörg af fremstu þekkingar- og nýsköpunarfyrirtækjum landsins. Liðið hefur farið með bílana á fjölmörg alþjóðleg kappakstursmót verkfræðinema víða um Evrópu og m.a. vakið athygli fyrir nýstárlega hönnun á vængjum.

Í þessu stutta erindi fara fulltrúar liðsins yfir þróun bílsins og það fjölbreytta nýsköpunarstarf sem fylgir því. Sýnd verða myndbönd af bílnum í akstri og rætt um áskoranir við hönnun rafknúins bíls.

Streymi frá viðburðinum

Fulltúar Team Spark, kappakstursliðs Háskóla Íslands, fjalla um þá fjölbreyttu nýsköpun sem felst í því að þróa rafknúinn kappakstursbíl sem standast þarf strangar alþjóðlegar kröfur. Viðburðurinn er lokaður í ljósi samfélagsaðstæðna en streymt verður frá honum á vef og samfélagsmiðlum Háskóla Íslands. Viðburðurinn er hluti af Nýsköpunarvikunnia

Neisti í nýsköpun – Hvernig býr maður til rafmagnskappakstursbíl?