Skip to main content

Frestað - Hvernig verða fjöllin til? Eldfjallaganga - Með fróðleik í fararnesti

Frestað - Hvernig verða fjöllin til? Eldfjallaganga - Með fróðleik í fararnesti - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. október 2020 11:00 til 14:00
Hvar 

Á einkabílum frá bílastæðinu við Helgafell við Hafnarfjörð/Kaldársel.

Nánar 
Brottför á einkabílum frá bílastæðinu við Helgafell við Hafnarfjörð/Kaldársel.

Frestað vegna kórónuveirufaraldurs

Jarðfræðingur frá Háskóla Íslands mun leiða göngu á Helgafell við Hafnarfjörð. Við ætlum að fræðast um ýmis jarðfræðileg fyrirbrigði svo sem eldgos og velta fyrir okkur hvernig ýmis fyrirbæri urðu til.

Þáttakakendur eru hvattir til að klæða sig vel, ver í góðum skóm og taka með gott nesti. 

Ekið frá bílastæðinu við Helgafell við Hafnarfjörð/Kaldársel. 

Gangan tekur um 3 klukkustundir.

Gangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands, Með fróðleik í fararnesti. Þúsundir Íslendinga á öllum aldri hafa notið þess að halda í göngur með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands undanfarin ár og þegið fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans við nánast hvert fótmál. Göngurnar hafa löngu unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekkingu fólks, ekki síst ungmenna, á sama tíma og boðið er upp á holla og skemmtilega hreyfingu.

Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!

Jarðfræðingur frá Háskóla Íslands mun leiða göngu á Helgafell við Hafnarfjörð. Við ætlum að fræðast um ýmis jarðfræðileg fyrirbrigði svo sem eldgos og velta fyrir okkur hvernig ýmis fyrirbæri urðu til.

Hvernig verða fjöllin til? Eldfjallaganga - Með fróðleik í fararnesti