FRESTAÐ - Fjöruferð í Gróttu - Með fróðleik í fararnesti
Bílastæði við Gróttu yst á Seltjarnarnesi.
Við ætlum að skoða ýmsar lífverur fjörunnar, grúska og leita að kröbbum og öðrum smádýrum í skemmtilegri fjöruferð í Gróttu. Þar er fjölbreytt dýra-, fugla- og plöntulíf. Líffræðingar frá Háskóla Íslands leiða gönguna.
Gott er að mæta vel klædd(ur) og í stígvélum og með fötur eða glær ílát til að safna í hinum ýmsu lífverum og auðvitað með gott nesti. Gangan tekur 2-3 klst.
Gangan er hluti af samstarfsverkefni Ferðafélags Íslands og Háskóla Íslands, Með fróðleik í fararnesti. Þúsundir Íslendinga á öllum aldri hafa notið þess að halda í göngur með Háskóla Íslands og Ferðafélagi Íslands undanfarin ár og þegið fróðleik í fararnesti frá vísindamönnum og sérfræðingum Háskólans við nánast hvert fótmál. Göngurnar hafa löngu unnið sér fastan sess en með þeim er aukið við þekkingu fólks, ekki síst ungmenna, á sama tíma og boðið er upp á holla og skemmtilega hreyfingu.
Þátttaka er ókeypis og allir velkomnir. Ekkert að panta, bara mæta!