Skip to main content

Fjarkynning á framhaldsnámi 22.-26. mars

Fjarkynning á framhaldsnámi 22.-26. mars - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
22. mars 2021 9:00 til 26. mars 2021 17:00
Hvar 

Í beinu streymi á netinu

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Háskóli Íslands kynnir um hundrað námsleiðir í framhaldsnámi í streymi á netinu dagana 22.-26. mars. Með þessu vill skólinn gera sem flestum kleift að kynna sér vel framboð skólans án þess að þurfa að víkja frá tölvunni eða smátækinu.

Umsóknarfrestur um framhaldsnám er til 15. apríl

Á fjarkynningunum verða veittar ítarlegar upplýsingar um samsetningu hverrar námsleiðar, inntökuskilyrði, fyrirkomulag lokaverkefna, atvinnumöguleika og margt fleira.

Sérfræðingar námsleiða, deilda og fræðasviða Háskólans munu leiða þessar fjarkynningar sem verða í eftirfarandi röð:

22. mars - Námsleiðir Verkfræði- og náttúruvísindasviðs

23. mars - Námsleiðir Menntavísindasviðs

24. mars - Námsleiðir Félagsvísindasviðs

25. mars - Námsleiðir Heilbrigðisvísindasviðs

26. mars - Námsleiðir Hugvísindasviðs

Slóð á allar kynningar

Í heildina eru yfir tvö hundruð námsleiðir í boði í framhaldsnámi við Háskóla Íslands og opna þær leiðina að fjölbreyttum tækifærum í atvinnu- og þjóðlífi bæði á Íslandi og víða um heim.

Á vef skólans um framhaldsnám er hægt að sjá gagnlegar upplýsingar um allt framhaldsnám í boði.