Skip to main content

Hollráður

Hollráður  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Nemendur í grunnámi í sjúkraþjálfunarfræðum hafa á undanförnum árum boðið framhaldsskólanemendum upp á kynningu á námi í sjúkraþjálfun ásamt heilsueflandi fræðslu.  

Verkefnið kallast Hollráður en tók við af Hreyfingi sem upphaflega var BS-verkefni árið 2007. Síðan þá hafa nemendur farið í heimsókn í framhaldsskóla að jafnaði einu sinni á ári, í mars og apríl.

Tilgangur Hollráðs er: 

  • Miðla efni um lýðheilsu og heilsueflingu 
  • Kynna sjúkraþjálfun sem fag 
  • Þjálfa sjúkraþjálfunarnema í að koma fram 

Ef framhaldsskólar hafa áhuga á að fá fræðslu til sín, er sjálfsagt að senda tölvupóst á physiotherapy@hi.is.  

Hollráður er nýsköpunarverkefni sem tók við Hreyfingi sem var upphaflega BS - verkefni árið 2007.  Hollráður miðlar framhaldsskólanemendum heilsueflandi fræðslu.

Nemendur með hvítan stuttermabol með merki Hollráðs í rauðum lit.
Tengt efni