Skip to main content

Sprettur

Sprettur

Sprettur er verkefni á kennslusviði Háskóla Íslands.

Sprettur styður og undirbýr nemendur með innflytjendabakgrunn til háskólanáms.

Markmið Spretts er að stuðla að jöfnum tækifærum til menntunar.

Viltu verða mentor í Spretti?

Ef þú vilt verða mentor í Spretti getur þú sótt um þátttöku fyrir næsta skólaár. Fylltu út þetta eyðublað eða hafðu samband við verkefnisstjóra Spretts.

Hvað er Sprettur?

Sjáðu um hvað námið snýst

Fyrir hverja?

Sprettur er fyrir framhaldsskólanemendur með innflytjendabakgrunn sem koma úr fjölskyldum þar sem enginn hefur háskólamenntun.

Þú getur tekið þátt í Spretti ef:

  • Þú hefur náð 18 ára aldri.
  • Þú hefur lokið a.m.k. einu ári í framhaldsskóla.
  • Þú ert skráð/ur í fullt nám í framhaldsskóla.
  • Þú ætlar þér að taka stúdentspróf/framhaldsskólapróf og fara svo í háskóla.
  • Foreldrar þínir og foreldrar þeirra fæddust erlendis, hvort sem þú fæddist erlendis eða ekki.
  • Fáir eða engir í fjölskyldu þinni eru með háskólamenntun.

Hvað gerum við í Spretti? 

Í Spretti styðjum við nemendur til að læra meira um sig sjálf, samfélagið og háskólanám og það gerum við í gegnum:

  • umræður
  • heimavinnuhópa
  • menningarviðburði
  • samveru með mentor

Nemendur sem taka þátt skuldbinda sig til að mæta þrisvar í mánuði og taka þátt í fjögur ár. Það er skyldumæting.

Hvað fæ ég? 

  • Félagslegan og námslegan stuðning
  • Fjárhagslegan stuðning
  • Mentor  
  • Menntun
  • Sjálfsstyrkingu

Hvernig tek ég þátt? 

Sendu inn rafræna umsókn og meðmælabréf.

Sjá nánari leiðbeiningar hér.

Næsta umsóknarferli hefst 1. febrúar og lýkur 1. apríl 2023. 

Við höfum samband við alla umsækjendur og boðum í viðtöl í apríl. 

Hafðu samband

Verkefnisstjóri býður upp á fjölbreyttar kynningar á Spretti. Kynningarnar geta verið fyrir bæði einstaklinga, fjölskyldur, nemendahópa og starfsmannahópa.

Hægt er að hafa kynningarnar rafrænar eða staðsettar í framhaldsskólum, stofnunum eða Háskóla Íslands.

Juan Camilo Roman Estrada
Verkefnisstjóri Spretts
Netfang: juancamilo@hi.is    
Sími: 525 5405

Sabrina Rosazza
Starfsmaður Spretts
Netfang: sabrinar@hi.is
Sími: 525-5417