Skip to main content

Umsókn um doktorsnám á haustmisseri

Umsókn um doktorsnám á haustmisseri - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ágæti umsækjandi
Þakka þér fyrir að sækja um doktorsnám við Háskóla Íslands.

Umsóknin þín telst ekki gild fyrr en rétt fylgigögn hafa borist Háskóla Íslands, en þau þurfa að berast eigi síðar en tveimur vikum eftir umsóknarfrest eða 29. apríl.  

Óstaðfest eða skönnuð prófskírteini eru ekki gild fylgigögn.

Við bendum jafnframt á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ á umsóknarsíðu þinni. Þú ferð inn á síðuna með því að nota netfangið þitt og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú skráðir þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands.  

Umsækjendur með erlent ríkisfang (utan Norðurlanda) þurfa að skila vottorði um lögheimilssögu á Íslandi, form nr. C-122 frá Þjóðskrá Íslands.

Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan, í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar varðandi næstu skref.