
Hagfræði
180 einingar - Doktorspróf
Hagfræðideild Háskóla Íslands býður upp á doktorsnám í hagfræði. Doktorsnám er 180 einingar hið minnsta. Náminu lýkur með Ph.D. gráðu. Doktorsnám byggist að mestu á sjálfstæðum rannsóknum nemenda undir handleiðslu kennara. Gert er ráð fyrir að nemendur sæki námskeið eftir þörfum við Háskóla Íslands og aðra viðurkennda háskóla.

Um námið
Hagfræðideild býður upp á doktorsnám í hagfræði. Doktorsnám er 180 einingar hið minnsta og miðað við fullan námshraða tekur það 3 ár. Náminu lýkur með Ph.D. gráðu. Námið byggist að mestu á sjálfstæðum rannsóknum nemenda undir handleiðslu kennara.


SEIGLA
Félag doktorsnema á Félagsvísindasviði.
Tilgangur félagsins er að vinna að hagsmunamálum doktorsnema á Félagsvísindasviði og miðlun upplýsinga til þeirra auk þess að tilnefna fulltrúa doktorsnema í ráð og nefndir sviðsins.
Hafðu samband
Nemendaþjónusta Félagsvísindasviðs er á
Þjónustutorgi í Gimli
Netfang: nemFVS@hi.is
Sæmundargötu 10, 102 Reykjavík
Opið virka daga frá 9 - 15
Sími: 525 4500
Nánari upplýsingar um námið veitir Þórólfur Geir Matthíasson, prófessor í Hagfræðideild, totimatt@hi.is
