Skip to main content

Móttaka nýnema Félagsráðgjafardeildar

Móttaka nýnema Félagsráðgjafardeildar - á vefsíðu Háskóla Íslands

Við Félagsráðgjafardeild er lögð sérstök áhersla á að bjóða nýnema velkomna til náms. Við upphaf náms eru nýnemar, jafnt í grunn- og framhaldsnámi, boðaðir til fundar með starfsfólki deildarinnar, kennurum og eldri nemendum.

Á þeim fundi er nýnemum kynnt starfsemi HÍ, deildar og sviðs ásamt þeirri þjónustu sem í boði er fyrir nemendur. Þá kynna nemendafélög starfssemi sína og uppbyggingu háskólasvæðisins.

Kynning fyrir nýnema-BA

Kynning fyrir MA nemendur í starfsréttindanámi

Mentorar

Mentorar eru nemendur sem eru langt komnir í námi í félagsráðgjöf. Hlutverk þeirra er að auðvelda aðkomu nýnema að nýjum skóla.

Hver nýnemi fær úthlutað Mentor og getur hitt hann á nýnemafundi í upphafi haustmisseris. Eftir fundinn hafa nýnemarnir kost á að fara með Mentorum sínum í kynnisferð um háskólasvæðið. Þar að auki munu Mentorarnir vera nemendum innan handar út misserið.

Mentorar veita hagnýtar upplýsingar eftir þörfum, greiða fyrir félagslegum tengslum, hjálpa þeim að aðlagast kennsluháttum í háskólanum, vísa þeim á þá þjónustu sem þeir eiga kost á ásamt fleiru.

Mentorum er ekki ætlað að aðstoða nýnemana með verkefni eða annað námsefni.