Skip to main content

AFLÝST - Undir smásjánni: Ungar konur og samfélagsmiðlar

AFLÝST - Undir smásjánni: Ungar konur og samfélagsmiðlar - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
10. maí 2023 12:00 til 13:00
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Bratti

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Þessum viðburði er því miður aflýst vegna veikinda. 

RannKyn (Rannsóknarstofa um jafnrétti, kyngervi og menntun) og Menntavísindasvið bjóða til opins fyrirlestrar með Dr. Rosalind Gill,  Undir smásjánni: Ungar konur og samfélagsmiðlar þann 10. maí kl. 12-13 í húsnæði Menntavísindasviðs, Stakkahlíð. 

Forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir, heldur opnunarávarp viðburðarins.

Dr. Rosalind Gill er heimsþekktur félagssálfræðingur. Hún hefur gert umfangsmiklar rannsóknir á fjöl- og samfélagsmiðlum og áhrif þeirra á mótun sjálfsmyndar. Hún hefur verið leiðandi í feminískri umræðu um jafnréttismál, móðurhlutverkið, ungar konur og þann þrýsting sem þær upplifa í nútíma samfélagi.

Erindið byggir Gill á nýju rannsóknarverkefni sem framkvæmt var 2020-2022 og fjallar um daglegt (stafrænt) líf ungs fólks. Í erindinu leggur hún sérstaka áherslu á þann þrýsting og kvíða sem ungar konur upplifa í tengslum við samskipti á samfélagsmiðlum. Hún greinir ótta þeirra við að mistakast og hvernig skilja megi reynslu þeirra af stöðugu eftirliti og dómhörku í því samhengi.

Til þess að vinna gegn kynjamisrétti og kynjuðum staðalmyndum í samfélagi okkar er mikilvægt að hafa skilning á kyngervishugmyndum og þróun þeirra. Eitt af stóru jafnréttismálum samtímans er mótun kyngervis í stafrænum heimi, sérstaklega með hliðsjón af ungu fólki og samfélagsmiðlanotkun. Markmið viðburðarins er að vekja athygli á þessu mikilvæga máli.

.RannKyn (Rannsóknarstofa um jafnrétti, kyngervi og menntun) og Menntavísindasvið bjóða til opins fyrirlestrar með Dr. Rosalind Gill,  Undir smásjánni: Ungar konur og samfélagsmiðlar þann 10. maí kl. 12-13 í húsnæði Menntavísindasviðs, Stakkahlíð. 

Undir smásjánni: Ungar konur og samfélagsmiðlar