Skip to main content

Tengsl áfallastreituröskunar og hjartasjúkdóma

Tengsl áfallastreituröskunar og hjartasjúkdóma - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
11. apríl 2019 16:00 til 17:00
Hvar 

Tjarnarsalur Íslenskrar erfðagreiningar, Sturlugötu 8

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Huan Song, nýdoktor

Guðmundur Þorgeirsson, hjartalæknir og prófessor emeriti

Unnur A. Valdimarsdóttir, prófessor

Eftir inngangsorð Unnar Valdimarsdóttur prófessors mun dr. Huan Song kynna niðurstöður nýrrar vísindagreinar – sem í dag birtist í The British Medical Journal – um tengsl áfallastreituröskunar og skyldra raskana við þróun hjarta- og æðasjúkdóma.  Þá mun Guðmundur Þorgeirsson, hjartalæknir og prófessor emeritus, fara með lokaorð.

Málstofan er öllum opin og fer fram á ensku.

 

Kynning á niðurstöðum nýrrar rannsóknar á tengslum  áfallastreituröskunar og skyldra raskana við þróun hjarta- og æðasjúkdóma verður í dag.

Tengsl áfallastreituröskunar og hjartasjúkdóma