10 ára afmælishátíð Lífvísindaseturs

Veröld - Hús Vigdísar
VHV 023
Í tilefni þess að rúm 10 ár eru frá stofnun Lífvísindaseturs Háskóla Íslands er ætlunin að blása til afmælisfögnuðar föstudaginn 22. apríl kl. 14-16.
Sérstakur gestur afmælishátíðarinnar verður Dr. Tuuli Lappalainen prófessor í erfðamengjafræðum við konunglegu tæknistofnunina í Stokkhólmi, Svíþjóð. Auk þess er Tuuli gestavísindamaður við Erfðamengjamiðstöðina í New York, aðjúnkt við Kerfisfræðistofnun Kólombíúháskóla og forstöðumaður erfðamengjainnviða við SciLifeLab í Svíþjóð, en SciLifeLab er nokkurs konar systurstofnun Lífvísindaseturs þar í landi.
Á meðal efnis verður upphaf líftækninnar á Íslandi gerð skil og stefna Lífvísindaseturs til næstu 5 ára kynnt auk þess sem rektor Háskóla Íslands og sviðsforsetar Heilbrigðisvísindasviðs og Verk- og náttúruvísindasviðs HÍ flytja ávörp. Að lokum verður viðurkenning veitt í vísindamyndasamkeppni Lífvísindaseturs.
Dagskráin verður öll á ensku og verður jafnframt í beinu streymi: https://livestream.com/hi/lifvisindasetur10ara
13:40 Refreshments
14:00 Jóna Freysdóttir, Chairman of the Board of BMC - Welcome
14:05 Jón Atli Benediktsson, Rector of the University of Iceland
14:15 Inga Þórsdóttir, Dean of School of Health Sciences
14:25 Sigurður M Garðarsson, Dean of School of Engineering and Natural Sciences and Chairman of the Board of University of Iceland Science Park (Vísindagarðar)
14:35 Leifur Reynisson, Historian - Birth of biotechnology in Iceland
14:55 Prof. Tuuli Lappalainen, Director of National Genomic Infrastructure, SciLifeLab, Sweden
15:40 Eiríkur Steingrímsson, Professor at Faculty of Medicine - BMC Roadmap 2026
16:00 Erna Magnúsdóttir, Associate Professor at Faculty of Medicine - Best biological image
16:10 Closure
Chair: Þórarinn Guðjónsson, Dean of Faculty of Medicine
16:30 Refreshments at Litla torg
10 ára afmælishátíð Lífvísindaseturs 22. apríl 2022
