Ágæti umsækjandi Þakka þér fyrir að sækja um örnám við Háskóla Íslands. Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagátt HÍ, þar sem þú sóttir um námið. Til að skrá þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands notar þú rafræn skilríki eða netfangið og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú stofnaðir fyrst aðgang. Svar við umsókn birtist rafrænt inni í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“. Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan, í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar svo unnt sé að afgreiða umsókn þína. Fylgigögn með umsókn Hér eru upplýsingar um hvernig hægt er að skila fylgigögnum til Nemendaskrár. Ef óskað er nánari upplýsinga um fylgigögn, vinsamlegast hafðu samband við viðeigandi deildarskrifstofu. Umsækjendur sem eru að ljúka eða luku grunnnámi frá Háskóla Íslands eftir 1980 þurfa ekki að skila staðfestu afriti af prófskírteini. Skilafrestur fylgigagna Skila þarf fylgigögnum með umsókn eigi síðar en 12. júní vegna umsóknar fyrir haustmisseri og 7. desember fyrir vormisseri. Umsækjendur með erlent ríkisfang (utan Norðurlanda) sem sækja um nám fyrir haustmisseri, þurfa að skila vottorði um lögheimilissögu á Íslandi, form nr. C-122 frá Þjóðskrá Íslands. Afgreiðsla umsóknar Leitast verður við að afgreiða umsóknir eins fljótt og auðið er eða í síðasta lagi tveimur vikum eftir umsóknarfrest að því gefnu að öll fylgigöng hafi borist. Svar við umsókn birtist einungis rafrænt inni í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“. Greiðsla skrásetningagjalds Verði umsóknin þín samþykkt þarf að greiða skrásetningargjald HÍ fyrir eindaga til að staðfesta skólavist þína. Þú greiðir í umsóknagáttinni og er hægt að greiða gjaldið með greiðslukorti (debet- eða kreditkorti). Eindagi gjaldsins vegna umsóknar fyrir haustmisseri er 4. júlí en 6. janúar fyrir vormisseri. Skrásetningargjaldið er ekki endurkræft. Notandanafn og lykilorð að Uglu Eftir að þú hefur gengið frá greiðslu skrásetningargjaldsins getur þú sótt þér notandanafn og lykilorð að Uglu í umsóknagáttinni. Ef þörf er á frekari upplýsingum er hægt að senda tölvupóst á umsokn@hi.is. Sérúrræði Vinsamlegast leitaðu til Nemendaráðgjafar á 3. hæð í Háskólatorgi, áður en kennsla hefst, viljir þú óska eftir úrræðum í námi eða prófum vegna fötlunar, langvarandi veikinda eða sértækra námsörðugleika. Skila þarf vottorði/greiningu frá sérfræðingi til þess að fá úrræði. facebooklinkedintwitter