Ágæti umsækjandi Umsókn þín um að þreyta inntökupróf Læknadeildar og Tannlæknadeildar HÍ (læknisfræði/sjúkraþjálfunarfræði/tannlæknisfræði) hefur verið móttekin. Fylgigögn þurfa að hafa borist Nemendaskrá HÍ fyrir lok umsóknarfrests sem er 20. maí. Sjá nánar um fylgigögn hér fyrir neðan. Óstaðfest eða skönnuð prófskírteini eru ekki gild fylgigögn. Próftökugjald er kr. 35.000 og verður að greiða eigi síðar en fyrir kl. 16:00 á eindaga 1. júní, inni í umsóknaagátt Háskóla Íslands. Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ umsóknagáttinni. Þú ferð inn í gáttina með því að nota rafræn skilríki eða netfang og lykilorð sem þú bjóst til við skráningu í umsóknagáttina. Fylgigögn Fylgigögn þurfa að berast rafrænt úr Innu eða á pappírsformi (stimpluð og staðfest af framhaldsskóla/háskóla) fyrir lok umsóknarfrests 20. maí til: Háskóla Íslands Nemendaskrá, Háskólatorgi Sæmundargötu 4 102 Reykjavík Einnig er hægt að skila inn gögnum á Þjónustuborð Háskólatorgs. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu eða +60 ECTS einingum frá HÍ eftir 1980 þurfa ekki að skila staðfestu afriti af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Fylgigögn með umsókn í inntökupróf, sem skila þarf inn fyrir lok umsóknarfrests: Staðfest afrit af stúdentsprófsskírteini (öllum blaðsíðum) á pappírsformi og stimplað í lit af viðkomandi skóla. Ef þú gafst Háskóla Íslands leyfi í umsókninni til að sækja afrit af stúdentsskírteini þínu rafrænt í Innu nægir það sem staðfest afrit og ekki þarf að skila gögnum á pappír. Ekki er hægt að veita heimild fyrir Innu eftir að umsókn hefur verið send inn. Ef stúdentsprófi verður ekki lokið fyrir lok umsóknarfrests þarftu að skila inn staðfestingu frá framhaldsskóla (á pappírsformi) um að stúdentsprófi verði lokið þegar inntökuprófið verður þreytt. Þú þarft síðan að skila staðfestu afriti af stúdentsskírteini um leið og útskrift úr framhaldsskóla hefur farið fram. Ef sótt er um með +60 ECTS háskólaeiningum eða prófgráðu þarf að senda staðfest afrit á pappírsformi og stimplað í lit af viðkomandi háskóla. Afgreiðsla umsóknar Stefnt er að því að afgreiða gildar umsóknir innan nokkurra daga frá lokun umsóknarfrests. Að lokinni afgreiðslu umsókna fá umsækjendur tölvupóst með nánari upplýsingum um inntökuprófið. Próftökugjald Fljótlega eftir að umsóknarfresti lýkur mun möguleiki til greiðslu á próftökugjaldinu, 35.000 kr. birtast inn í umsóknagáttinni undir flipanum “Yfirlit umsókna”. Greiða þarf gjaldið í síðasta lagi fyrir kl. 16:00 á eindaga 1. júní. Hafðu strax samband við Nemendaskrá ef þú færð ekki upp greiðslumöguleikann í umsóknagáttinni, netfang: umsokn@hi.is. Athugið að próftökuréttur er háður settum greiðslufresti og próftökugjaldið er óendurkræft hætti umsækjandi við þátttöku. Nánari upplýsingar um inntökuprófið má finna á heimasíðu inntökuprófsins Staðsetning í prófi Í byrjun júní verður sendur póstur á umsóknarnetföng próftaka með upplýsingum um notandanafn og aðgangsorð sem þarf að nota til að komast inn í Inspera sem er rafrænt prófakerfi og verður notað við próftökuna. Upplýsingum um staðsetningu próftaka (hús, stofa, borð) verður jafnframt komið á framfæri. Próftakar þurfa að framvísa skilríki með mynd þegar þeir mæta á prófstað en prófúrlausnir verða merktar sjálfkrafa. Sérúrræði í inntökuprófi Vinsamlegast leitaðu til Nemendaráðgjafar á 3. hæð í Háskólatorgi, viljir þú óska eftir úrræðum í inntökuprófinu eða náminu vegna fötlunar, langvarandi veikinda eða sértækra námsörðugleika. Vinsamlega athugaðu að síðasti dagur til að ganga frá úrræðum fyrir inntökuprófið er 20. maí. Skila þarf inn vottorði/greiningu frá sérfræðingi til þess að fá úrræði. Niðurstöður inntökuprófs Gert er ráð fyrir að það taki allt að einn mánuð að fara yfir úrlausnir og að svarbréf verði send út eigi síðar en um miðjan júlí. Þeir sem fá inngöngu í námið munu fá upp möguleika í umsóknagáttinni, í flipanum “Yfirlit umsókna”, til að greiða skrásetningargjaldið, en þeir sem ekki fá inngöngu gefst kostur á að sækja um í annað nám við Háskóla Íslands í umsóknagáttinni. facebooklinkedintwitter