Skip to main content

Umsókn um íslensku sem annað mál

Umsókn um íslensku sem annað mál BA - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ágæti umsækjandi

Þakka þér fyrir að sækja um grunnnám við Háskóla Íslands.

Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagáttinni. Þú ferð inn í gáttina með því að nota rafræn skilríki eða netfang og lykilorð sem þú bjóst til við skráningu í umsóknagáttina.

Umsækjendur um Íslensku sem annað mál, hagnýtt nám, þurfa að standast inntökupróf í íslensku til að sýna fram á færni  sem samsvarar A1 samkvæmt Evrópska tungumálarammanum áður en námið hefst.  Hér má finna upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu.

Umsækjendur um Íslensku sem annað mál, BA og Íslenskustoð þurfa að standast inntökupróf í íslensku sem sýnir fram á færni í íslensku á stigi A2+ samkvæmt Evrópska tungumálarammanum (CEFR). Hér má finna upplýsingar um lágmarkskröfur, tímasetningu, gerð prófs og annað sem tengist inntökuprófinu.

Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan, í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar svo unnt sé að afgreiða umsókn þína.