Ágæti umsækjandi Þakka þér fyrir að sækja um grunnnám við Háskóla Íslands. Við bendum á að þú þarft að fylgjast með framvindu umsóknar undir flipanum „Yfirlit umsókna“ í umsóknagátt HÍ, þar sem þú sóttir um námið. Til að skrá þig inn í umsóknagátt Háskóla Íslands notar þú rafræn skilríki eða netfangið og lykilorðið sem þú bjóst til þegar þú stofnaðir fyrst aðgang. Svar við umsókn mun einungis birtast í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“. Áríðandi er að skoða vel innihald felliglugganna hér að neðan, í þeim er að finna mikilvægar upplýsingar svo unnt sé að afgreiða umsókn þína. Fylgigögn með umsókn Stúdentsskírteini Nemendaskrá getur sótt stúdentsskírteini þitt í Innu hafir þú samþykkt það þegar þú sóttir um. Aðrar leiðir til að skila staðfestu afriti af stúdentsskírteini má sjá hér. Einnig er hægt að skila inn gögnum á Þjónustuborð Háskólatorgs. Ekki er hægt að veita heimild fyrir Innu eftir að umsókn hefur verið send inn, þá þarf að skila inn á pappírsformi. Skilafrestur stúdentsprófsskírteinis Skila þarf skírteininu ekki seinna en 12. júní vegna umsóknar fyrir haustmisseri og 7. desember fyrir vormisseri. Umsækjendur sem hafa lokið prófgráðu eða +60 ECTS einingum frá HÍ eftir 1980 þurfa ekki að skila staðfestu afriti af prófskírteini né af stúdentsprófsskírteini. Önnur skírteini (ígildi stúdentsprófs): Ef ekki er um hefðbundið stúdentsprófsskírteini að ræða þarf að skila inn staðfestu afriti af útskriftarskírteini (lokapróf) frá framhaldsskóla eða námsferilsyfirliti/skírteini frá öðrum háskóla. Leiðir til að skila staðfestu afriti af útskriftarskírteini (lokapróf) má sjá hér. Umsækjendur með erlent ríkisfang (utan Norðurlanda) þurfa að skila vottorði um lögheimilissögu á Íslandi, form nr. C-122 frá Þjóðskrá Íslands. Fylgigögn með umsóknum á undanþágu - haustmisseri eingöngu Ef sótt er um á undanþágu frá formlegum inntökuskilyrðum deilda þarf að skila inn: Staðfestu afriti af námsferli frá framhaldsskóla/-um á pappírsformi sem er stimplað í lit af viðkomandi skóla. Afritin þurfa að berast: Háskóla Íslands, Nemendaskrá Sæmundargötu 4 102 Reykjavík. Einnig er hægt að koma með afritin til Þjónustuborðs Háskólatorgs. Miðað er við að umsækjandi hafi lokið a.m.k 100 einingum í framhaldsskóla (170 fein.) og hafi umtalsverða starfsreynslu. Starfsvottorði frá vinnuveitanda þar sem kemur fram starfstími og starfshlutfall. Vottorðin mega berast með tölvupósti beint frá vinnuveitanda á umsokn@hi.is eða á pappírsformi með almennum bréfapósti, sjá póstfang hér að ofan. Í Kennsluskrá Háskóla Íslands má finna lista með upplýsingum um inntökuskilyrði og einingaviðmið deilda. Afgreiðsla umsóknar Leitast verður við að afgreiða umsóknir eins fljótt og auðið er eða í síðasta lagi tveimur vikum eftir umsóknarfrest að því gefnu að öll fylgigögn hafi borist. Svar við umsókn birtist einungis rafrænt inni í umsóknagáttinni undir „Yfirlit umsókna“. Greiðsla skrásetningagjalds HÍ Verði umsóknin þín samþykkt þarf að greiða skrásetningargjald HÍ fyrir eindaga til að staðfesta skólavist þína. Þú greiðir í umsóknagáttinni. Hægt er að greiða gjaldið með greiðslukorti (debet- eða kreditkorti). Eindagi gjaldsins vegna umsóknar fyrir haustmisseri er 4. júlí en 6. janúar fyrir vormisseri. Skrásetningargjaldið er ekki endurkræft. Notandanafn og lykilorð að Uglu Eftir að þú hefur gengið frá greiðslu skrásetningargjaldsins getur þú sótt þér notandanafn og lykilorð að Uglu í umsóknagáttinni. Ef þörf er á frekari upplýsingum er hægt að senda tölvupóst á umsokn@hi.is. Sérúrræði Vinsamlegast leitaðu til Nemendaráðgjafar HÍ á 3. hæð í Háskólatorgi, áður en kennsla hefst, viljir þú óska eftir úrræðum í námi eða prófum vegna fötlunar, langvarandi veikinda eða sértækra námsörðugleika. Skila þarf inn vottorði/greiningu frá sérfræðingi til þess að geta fengið úrræði. facebooklinkedintwitter