Skip to main content
1. desember 2023

Yfir 80 doktorar brautskráðir frá HÍ á síðustu tólf mánuðum

Yfir 80 doktorar brautskráðir frá HÍ á síðustu tólf mánuðum - á vefsíðu Háskóla Íslands

Ríflega 80 doktorar hafa brautskráðst frá Háskóla Íslands á síðustu 12 mánuðum og var þeim fagnað á árlegri Hátíð brautskráðra doktora sem fram fór í Hátíðasal skólans í dag, á fullveldisdaginn. Þetta var í tólfta sinn sem hátíðin er haldin en viðstödd hana var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra sem jafnframt ávarpaði gesti við athöfnina.

Á hátíðinni taka þeir doktorar sem brautskráðst hafa frá skólanum á undanliðnum 12 mánuðum við gullmerki skólans og að þessu sinni eru þeir 83 talsins. Doktorarnir koma af öllum fimm fræðasviðum skólans og í hópnum eru 34 karlar og 49 konur. Sameiginlegar doktorsgráður með öðrum háskólum eru tvær talsins auk þess sem á árinu brautskráðist nemandi sameiginlega frá tveimur fræðasviðum skólans. 37% doktoranna eru með erlent ríkisfang. Brautskráðir doktorar frá stofnun Háskóla Íslands telja nú á annað þúsund en sá áfangi náðist í fyrra að þúsundasti doktorinn brautskráðist frá skólanum. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra var sem fyrr segir viðstödd hátíðina og færði doktorunum innilegar hamingjuóskir með mikilvægan áfanga. Auk hennar fluttu þeir Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Darri Eyþórsson, doktor í umhverfisverkfræði, ávörp. Ingibjörg Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor vísinda, stýrði afhendingu gullmerkja skólans.

Í ávarpi sínu benti Darri á að tími hans í doktorsnámi hefði senn falið í sér erfiðustu áskoranir lífs hans en um leið hans stærstu sigra. „Ég lærði svo ótrúlega mikið. Mér gafst færi á að vinna með mörgu af klárasta fólkinu á mínu sviði. Ég dvaldi eitt ár við rannsóknir við University of Washington in Seattle, sem veitti mér mikinn innblástur. Þá fékk ég tækifæri til að sækja vinnustofur og ráðstefnur í fremstu röð og að kynna mínar rannsóknir fyrir stórum hópum virtra fræðimanna á sama sviði. Ég naut snilli þeirra sem á undan hafa komið á sviðinu um leið og ég kenndi framtíðarkynslóðum vísindamanna og hugsuða. Ég varð betri vísindamaður, betri verkfræðingur, betri hugsuður, betri penni og betri kennari,“ sagði Darri sem færði um leið öllum doktorahópnum innilegar hamingjuóskir með áfangann.

Um 70 doktorar brautskráðir á ári síðasta áratuginn

Það er til marks um hversu mikið doktorsnám hefur eflst við skólann á öldinni að árið 2001 voru fjórir nýir doktorar brautskráðir frá háskólanum, en undanfarinn áratug hafa þeir að meðaltali verið um 70 á ári.

„Doktorsnám við skólann er eftirsótt af innlendum og erlendum nemendum og verkefnin eru iðulega unnin í alþjóðlegu samstarfi. Um leið gerir það skólanum kleift að sinna hlutverki sínu sem stærsti og breiðasti háskóli þjóðarinnar, háskóli sem brautskráir nemendur á öllum námsstigum á 5 fræðasviðum og í 26 deildum. Þetta er afar mikilvægt því rannsóknir og góð og fjölbreytt menntun eru jafnan talin vera ein helsta forsenda hagvaxtar og aukinnar velsældar þjóða,“ segja þau Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, og Ingibjörg Gunnarsdóttir, aðstoðarrektor vísinda, í ávarpi sínu í riti sem gefið er út í tilefni hátíðarinnar. Þar er að finna yfirlit yfir brautskráða doktora á tímabilinu 1. desember 2022 til 1. desember 2023 og tölfræði um þróun doktorsnáms við HÍ á undangengnum árum. 

Háskóli Íslands óskar þeim stóra og glæsilega hópi sem lokið hefur doktorsnámi frá skólanum undanfarna 12 mánuði innilega til hamingju með áfangann og velgengni í þeim verkefnum sem taka við að lokinni útskrift.
 

rektor, aðstoðarrektor vísinda, forseta fræðasviða og doktorarnir sem sóttu athöfnina í dag
Nýir doktorar á Félagsvísindasviði ásamt rektor, aðstoðarrektor vísinda og sviðsforseta.
Nýir doktorar á Heilbirgðisvísindasviði ásamt rektor, aðstoðarrektor vísinda og sviðsforseta.
Nýir doktorar á Hugvísindasviði ásamt rektor, aðstoðarrektor vísinda og sviðsforseta.
Nýir doktorar á Menntavísindasviði ásamt rektor, aðstoðarrektor vísinda og sviðsforseta.
Nýir doktorar á Verkfræði- og náttúruvísindasviði ásamt rektor, aðstoðarrektor vísinda og sviðsforseta.