Varði doktorsritgerð um prédikun á tímum átaka og áfalla

Fritz Már Jörgensson Berndsen hefur varið doktorsritgerð sína í guðfræði, Áföll, vald, samskipti: Upplifun prédikarans á átakatímum í ljósi prédikunarfræði, við Guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands. Ritgerðin var unnin undir leiðsögn Sigríðar Guðmarsdóttur, prófessors í guðfræði við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Hjalti Hugason, prófessoer emeritus við Háskóla Íslands, Pétur Pétursson, prófessor ermeritus við Háskóla Íslands og Þorbjörn Broddason, prófessor emeritus við Háskóla Íslands.
Andmælendur við vörnina voru Rúnar Vilhjálmsson, prófessor í félagsfræði við Hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild Háskóla Íslands og Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, aðjunkt í guðfræði við Háskóla Íslands. Arnfríður Guðmundsdóttir, deildarforseti Guðfræði- og trúarbragðafræðideildar, stjórnaði athöfninni sem fór fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands 20. apríl.
Um rannsóknina
Doktorsrannsóknin er þverfagleg og snertir bæði félagsfræði og guðfræði. Ritgerðin byggir á eigindlegri viðtalsrannsókn þar sem rætt er við presta um prédikun á tímum átaka og áfalla. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á reynslu presta af því að prédika í kjölfar efnahagshruns, áfalla og erfiðra mála er vörðuðu bæði íslenskt samfélag og þjóðkirkjuna. Ein af stærstu áskorunum rannsóknarinnar snýr að áhrifum ólíkra birtingarmynda valds á prédikun, þar með talið mögulegri valdamiðlun eða misbeitingu valds. Fræðileg umræða um áföll og vald innan prédikunarfræða hefur skapað svigrúm fyrir nýjar rannsóknir á þessum þáttum. Doktorsrannsóknin dregur fram þætti sem hafa áhrif á prédikarann og starf hans og sýnir hvernig samfélagslegar aðstæður og átök innan þjóðkirkjunnar endurspeglast í líðan, prédikun og sjálfsmynd presta.
Um doktorinn
Fritz Már Jörgensson Berndsen lauk BA-, Mag.theol.- og MA-prófi í guðfræði frá Háskóla Íslands. Hann lauk jafnframt námi í sáttamiðlun árið 2019. Fritz er með diplómapróf í félagsráðgjöf frá HÍ, með áfengis- og vímuefnafræði sem sérsvið, auk diplómaprófs í klínískri faghandleiðslu frá félagsráðgjafadeild skólans. Hann starfar nú sem prestur í Keflavíkurkirkju og rekur eigin stofu þar sem hann sinnir handleiðslu, sáttamiðlun, stuðningi og ráðgjöf, auk þess að halda námskeið og fyrirlestra. Fritz Már er einnig stundakennari við Háskóla Íslands.






