Skip to main content
24. júní 2021

Sex hljóta verðlaun fyrir námsárangur í eðlisfræði og efnafræði 

Sex hljóta verðlaun fyrir námsárangur í eðlisfræði og efnafræði  - á vefsíðu Háskóla Íslands

Sex nemendur sem útskrifuðust úr grunnnámi með BS-gráðu í eðlisfræði og efnafræði við Háskóla Íslands háskólaárið 2020-2021 hljóta verðlaun úr Verðlaunasjóði Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi í ár. Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í dag, fimmtudaginn 24. júní. Verðlaunaféð nemur samtals þremur milljónum króna.

Katrín Agla Tómasdóttir og Þorsteinn Elí Gíslason hlutu verðlaun fyrir ágætiseinkunn í eðlisfræði.

Alec Elías Sigurðarson, Hafdís Haraldsdóttir, Viktor Ellingsson og Þórir Steinn Valgeirsson hlutu verðlaun fyrir ágætiseinkunn í efnafræði. 

Átti ekki kost á að stunda háskólanám

Verðlaunasjóður Guðmundar P. Bjarnasonar frá Sýruparti á Akranesi var stofnaður árið 2000 með rausnarlegri gjöf Guðmundar, sem hann bætti síðar tvívegis í. Hann fæddist á Sýruparti á Akranesi 1909 og bjó um árabil á Höfða, dvalarheimili aldraðra á Akranesi. Guðmundur P. Bjarnason lést í febrúarmánuði 2006 í hárri elli. Hann átti þess ekki kost að stunda háskólanám en starfaði sem netagerðamaður og fiskmatsmaður á Akranesi auk þess að stunda útgerð í félagi við bróður sinn. Guðmundur var einn af stofnendum Knattspyrnufélagsins Kára árið 1922 og Taflfélags Akraness árið 1933. 

Hlutfallslega færri nemendur sækja háskólanám í eðlisfræði og efnafræði á Íslandi en í samanburðarlöndum okkar. Stuðningur Guðmundar við háskólanemendur í eðlis- og efnafræði er því mikilvægt lóð á þá vogarskál að hvetja unga Íslendinga að sækja nám í þessum fögum.

Stjórn Verðlaunasjóðs Guðmundar P. Bjarnasonar frá Akranesi skipa Guðmundur G. Haraldsson, prófessor í efnafræði, sem er formaður, Hafliði Pétur Gíslason, prófessor í eðlisfræði, og Eiríkur Dór Jónsson, fulltrúi Arion banka sem er vörsluaðili sjóðsins samkvæmt skipulagsskrá. 

Verðlaunahafar ásamt stjórn sjóðsins, rektor Háskóla Ísands og forseta Verkfræði- og náttúruvísindasviðs. MYND/Kristinn Ingvarsson