Skip to main content
7. júlí 2020

Samkeppniseftirlitið bætist í hóp þeirra sem bjóða starfsþjálfun

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands undirritaði á dögunum samning við Samkeppniseftirlitið um starfsþjálfun nemenda. Stofnunin bætist því í glæsilegan hóp fyrirtækja og stofnana sem munu bjóða viðskiptafræðinemum á þriðja ári upp á möguleikann á að sækja um starfsþjálfun komandi vetur.

Valur Þráinsson, aðalhagfræðingur Samkeppniseftirlitsins var ánægður með samninginn og sagði: „Samkeppniseftirlitið leggur mikla áherslu á góð tengsl stofnunarinnar við fræðimenn og nema. Með þessu samstarfi gefst nemendum við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands tækifæri til þess að öðlast innsýn í starf eftirlitsins og vinna að spennandi verkefnum sem auka hæfni viðkomandi til að beita hagfræðilegri nálgun í námi og starfi. Til viðbótar er starfsþjálfun frábær vettvangur fyrir nema til að átta sig betur á hvar áhugasvið þeirra liggur og hjálpar þeim því þannig að finna framhaldsnám við hæfi. Við hlökkum til að taka vel á móti nemendum Viðskiptafræðideildar.“
 
„Ég tek undir það sem Valur segir, það er mjög mikilvægt fyrir nemendur að fá innsýn í störf stofnana á borð við Samkeppniseftirlitið. Hvað starfsfólk eftirlitsins gerir og af hverju. Ástæða þess að ég nefni þetta er að eftirlitið hefur í gegnum tíðina verið mikið til umfjöllunar í fjölmiðlum og fólk haft ýmsar skoðanir á vinnubrögðum og niðurstöðum mála. Fyrir mig persónulega var það afar lærdómsríkur tími að sitja í stjórn Samkeppniseftirlitisins á sínum tíma, ég fékk allt aðra sýn á marga hluti og skildi ýmsar ákvarðanir betur” sagði Ásta Dís Óladóttir, dósent í Viðskiptafræðideild.

Starfsþjálfun er nýtt verkefni sem fer af stað veturinn 2020-2021. Áhugasömum fyrirtækjum sem vilja taka þátt í verkefninu er bent á að hafa samband við Jónínu Kárdal hjá Tengslatorgi Háskóla Íslands - joninaka@hi.is

Ásta Dís Óladóttir og Valur Þráinsson undirrita samninginn