Skip to main content
2. desember 2020

Nærri fjórðungur COVID-sjúklinga uppfyllti ekki einkennamerki sjúkdómsins

""

Ný rannsókn vísindahóps við Landspítala og Háskóla Íslands á tíðni og þróun einkenna meðal COVID-19-sjúklinga í fyrstu bylgju sjúkdómsins hér á landi bendir til að nærri fjórðugur hefði ekki greinst með sjúkdóminn eða greiningu hefði seinkað ef einungis þeir sem uppfylltu einkennaskilmerki sjúkdómsins hefðu fengið að fara í sýnatöku. Greint er frá niðurstöðunum í tímaritinu British Medical Journal í dag. Rannsóknin sýnir enn fremur að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum.

Fyrsti höfundur greinarinnar er nýdoktorinn og læknirinn Elías Eyþórsson en rannsóknina vann hann undir handleiðslu Runólfs Pálssonar og Martins Inga Sigurðssonar, prófessora við Læknadeild, og í samstarfi við stóran hóp vísindamanna, lækna og læknanema við Landspítala og Háskóla Íslands.

Til þessa hafa flestar rannsóknir á einkennum COVID-19 byggst á upplýsingum um einstaklinga sem þarfnast hafa innlagnar á sjúkrahús. Lengi vel voru þeir sem ekki þurftu sjúkrahúsinnlögn ýmist ekki greindir með sjúkdóminn eða voru án þjónustu heilbrigðisstarfsfólks meðan á veikindunum stóð. Þá hafa þær fáu rannsóknir sem kannað hafa einkenni allra einstaklinga sem greinst hafa með COVID-19 nær undantekningarlaust stuðst einvörðungu við spurningalista sem lagður var fyrir smitaða einstaklinga við greiningu. Afleiðingin er sú að birtingarmynd alvarlegra COVID-veikinda hefur verið gerð ágæt skil en upplýsingar skortir um einkenni annarra sem greinast með COVID-19. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þess að ákvörðun um framkvæmd greiningarprófs vegna gruns um COVID-19 byggist gjarnan á vel skilgreindum einkennum þannig að ef einkennamynstrið er frábrugðið hjá einstaklingum með væga sjúkdómsmynd er hætt við að ekki þyki ástæða til sýnatöku. 

Fyrsti höfundur greinarinnar er æknirinn Elías Eyþórsson sem brautskráðist með doktorsgráðu frá Háskóla Íslands í fyrra. Rannsóknina vann hann undir handleiðslu Runólfs Pálssonar og Martins Inga Sigurðssonar, prófessora við Læknadeild, og í samstarfi við stóran hóp vísindamanna, lækna og læknanema við Landspítala og Háskóla Íslands. MYND/Kristinn Ingvarsson

Rúmur fimmtungur uppfyllti ekki einkennaskilamerki WHO

Rannsókn Elíasar og félaga byggðist á gögnum sem var safnað á COVID-göngudeild Landspítala. Allir sem greindust með COVID-19 (jákvætt PCR-próf fyrir SARS-CoV-2) voru skráðir í símaþjónustu deildarinnar sem fól í sér tíð símtöl hjúkrunarfræðinga og lækna þar sem lagt var mat á líðan fólks og ráðgjöf veitt. Jafnframt var í hverju símtali spurt hvort einhver af 19 skilgreindum einkennum væru til staðar og mat lagt á alvarleika veikindanna. Svör við þessum spurningum voru skráð kerfisbundið á sérstakt eyðublað sem var hannað fyrir þjónustu göngudeildarinnar og var skráningin uppfærð eftir hvert símtal. Rannsóknin náði til allra 1797 einstaklinga sem greindust með COVID-19 frá 28. febrúar til 30. apríl 2020 og var 1564 sem greindust eftir að skráningarblaðið var tekið í notkun gefinn sérstakur gaumur. 

Niðurstöður rannsókninnar reyndust áhugaverðar. Algengustu einkenni COVID-19 voru slappleiki (75%),  höfuðverkur (73%) og hósti (73%). Einungis 48% fengu hita og 58% voru með bragðskynstruflun og 57% lyktarskynstruflun. Öll einkenni voru algengust í upphafi veikinda fyrir utan bragð- og lyktarskynstruflun sem var örlítið algengari á áttunda degi eftir að einkenni komu fram. Þótt oft sé talað um COVID-19 sem öndunarfærasjúkdóm er athyglisvert að 48% höfðu einkenni frá meltingarfærum. Rannsóknin sýndi einnig að 22% greindra einstaklinga uppfylltu ekki einkennaskilmerki Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) fyrir greiningarpróf og 14% uppfylltu ekki skilmerki Sóttvarnarmiðstöðar Bandaríkjanna (CDC). Niðurstöðurnar benda því til þess að allt að 24% einstaklinga sem greindust með COVID-19 hefðu ekki greinst með sjúkdóminn eða greiningu hefði seinkað ef einungis þeir sem uppfylltu ofangreind skilmerki hefðu fengið að fara í sýnatöku. 

Rannsóknin bætir við mikilvægri þekkingu um þróun einkenna hjá einstaklingum með COVID-19. Líklegt þykir að fyrri rannsóknir hafi ofmetið tíðni einkenna sem eru algeng hjá alvarlega veiku fólki. Jafnframt sýnir rannsóknin að einkennamynstur er mjög breytilegt hjá þeim sem greinast með COVID-19 og að kröfur um að einstaklingar þurfi að hafa tiltekin einkenni til að fá að gangast undir greiningarpróf munu óhjákvæmilega leiða til vangreiningar. 

Greinina má nálgast á vef British Medical Journal

Starfsmaður Landspítala