Skip to main content
6. nóvember 2019

Íslensku menntaverðlaunin endurvakin

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hafa í samvinnu við aðila menntakerfisins bundist samtökum um að veita Íslensku menntaverðlaunin á ný. Samstarfsaðilar undirrituðu samkomulag um verðlaunin á Bessastöðum í gær.

Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum. Ein verðlaun verða veitt skóla eða annarri menntastofnun fyrir framúrskarandi starf. Í annan stað verður kennara sem stuðlað hefur að framúrskarandi menntaumbótum veitt verðlaun. Þriðju verðlaunin verða veitt þróunarverkefni á sviði menntunar sem stenst ítrustu gæðakröfur. Að auki verður veitt hvatning til einstaklings, hóps eða samtaka sem lagt hafa af mörkum við að stuðla að menntaumbótum sem þykja skara fram úr. 

Forseti Íslands hefur skipað Gerði Kristnýju Guðjónsdóttur, skáld og rithöfund, formann viðurkenningarráðs, sem mun halda utan um framkvæmd verðlaunaveitinganna.

Auk embættis forseta Íslands, mennta- og menningarmálaráðuneytis og samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis, koma að verkefninu Félag um menntarannsóknir, Grunnur – félag fræðslustjóra og stjórnenda skólaskrifstofa, Kennaradeild Háskólans á Akureyri, Kennarasamband Íslands, Menntamálastofnun, Menntavísindasvið Háskóla Íslands, Miðstöð skólaþróunar við Háskólann á Akureyri, Samband íslenskra sveitarfélaga, Samtök áhugafólks um skólaþróun og Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. 

Verðlaunin voru veitt í tíð fyrri forseta frá árinu 2005 en hefur nú verið komið í ákveðinn farveg með samkomulagi milli þeirra sem að þeim standa. Stefnt er að því að veita verðlaunin í lok næsta árs.
 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra hafa í samvinnu við aðila menntakerfisins og ráðuneyti sveitarstjórnarmála bundist samtökum um að veita Íslensku menntaverðlaunin á ný. Samstarfsaðilar undirrituðu samkomulag um verðlaunin á Bessastöðum í gær. Markmið verðlaunanna er að vekja athygli samfélagsins á metnaðarfullu og vönduðu skóla- og frístundastarfi og auka veg menntaumbótastarfs. Verðlaunin verða veitt í þremur flokkum. Ein verðlaun verða ve