Skip to main content
28. maí 2024

Heilablóðfall er sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti

Heilablóðfall er sjaldgæfur fylgikvilli eftir ósæðarlokuskipti - á vefsíðu Háskóla Íslands

Tíðni heilablóðfalls í kjölfar ósæðarlokuskiptaaðgerða á nærri tveggja áratuga tímabili á Landspítala reyndist innan við 2% sem telst lágt og áþekkt því sem gengur og gerist á stærri hjartaskurðdeildum erlendis. Þetta sýnir ný rannsókn vísindamanna og nemenda við Háskóla Íslands og Landspítala sem greint er frá í maíblaði Læknablaðsins.

Kransæðahjáveita og ósæðarlokuskipti eru langalgengustu opnu hjartaaðgerðirnar á Vesturlöndum, m.a. á Íslandi. Í 90% tilfella er lokunni skipt út vegna kölkunar í henni en kölkunin veldur ósæðarlokuþrengslum og hjartabilun. Oftast er notast við lífræna gerviloku úr svíni eða gollurshúsi kálfs en í u.þ.b. 10% tilvika gerviloku úr hertu kolefni. Einn af alvarlegustu fylgikvillum ósæðarlokuskipta er heilablóðfall sem getur aukið tíðni annarra fylgikvilla, skert lífsgæði og jafnvel dregið sjúklinga til dauða. Í þessari rannsókn, sem náði til 740 sjúklinga á Landspítala, var árangur ósæðarlokuskipta á Íslandi á 18 ára tímabili (2002-2019) kannaður með áherslu á tíðni og afdrif sjúklinga sem fengu snemmkomið heilablóðfall eftir aðgerðina.

Þrettán sjúklingar (1,8%)  greindust með heilablóðfall þar sem helftarlömun og málstol reyndust algengustu einkennin. Ánægjulegt var að í rúmum helmingi tilvika hurfu einkenni á tveimur fyrstu sólarhringum frá aðgerð og hjá 70% sjúklinga á fyrsta mánuði frá aðgerð. Aðeins einn þessara 13 sjúklinga lést innan 30 daga frá aðgerð. Sjúklingarnir sem fengu heilablóðfall voru með lægri líkamsþyngdarstuðul en samanburðarhópur en tíðni annarra áhættuþátta hjarta- og æðasjúkdóma og annarra alvarlegra fylgikvilla en heilablóðfalls auk aðgerðartengdra þátta reyndist svipuð hjá báðum hópum. Legutími sjúklinga með heilablóðfall var 4 dögum lengri en hinna, þar af þurftu þeir tvo sólarhringa á gjörgæslu í stað eins.

Elín Metta Jensen, læknanemi við HÍ, er fyrsti höfundur greinarinnar en rannsóknina vann hún undir leiðsögn Tómasar Guðbjartssonar, hjarta- og lungnaskurðlæknis og prófessors við Læknadeild HÍ.

Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að tíðni heilablóðfalls eftir ósæðarlokuskipti á Íslandi sé lág og sambærileg við tíðni á mun stærri hjartaskurðdeildum erlendis. Þrátt fyrir að um sé að ræða alvarlegan fylgikvilla er athyglisvert að flestir sjúklingar sem fengu heilablóðfall voru lifandi mánuð eftir aðgerð og hjá meirihluta þeirra gengu einkenni til baka.

Það er ályktun höfunda út frá þessum niðurstöðum að tíðni heilablóðfalls eftir ósæðarlokuskipti á Íslandi sé lág og sambærileg við tíðni á mun stærri hjartaskurðdeildum erlendis. Þrátt fyrir að um sé að ræða alvarlegan fylgikvilla er athyglisvert að flestir sjúklingar sem fengu heilablóðfall voru lifandi mánuði eftir aðgerð og hjá meirihluta þeirra gengu einkenni til baka.

Fyrsti höfundur greinarinnar er Elín Metta Jensen, læknanemi við Háskóla Íslands, en rannsóknina vann hún undir leiðsögn Tómasar Guðbjartssonar, hjarta- og lungnaskurðlæknis og prófessors við Læknadeild HÍ.

Nálgast má greinina hér: https://www.laeknabladid.is/tolublod/2024/05/nr/8640

Elín Metta Jensen