Skip to main content
13. ágúst 2019

Háskóli Íslands í hópi sex bestu háskóla heims á sviði fjarkönnunar

""
  • Fjarkönnun er mjög mikilvægt svið fyrir Íslendinga
  • Jarðvísindi við skólann í fremstu röð
  • Listar ShanghaiRanking staðfesta alhliða styrk Háskóla Íslands

Háskóli Íslands færist upp um eitt sæti milli ára og er í 6. sæti yfir fremstu háskóla heims á sviði fjarkönnunar samkvæmt hinum virta Shanghai-lista sem metur frammistöðu háskóla á einstökum fræðasviðum. Skólinn er enn fremur í hópi hundrað bestu háskóla innan jarðvísinda. 

ShanghaiRanking Consultancy hefur allt frá árinu 2003 birt heildarlista yfir bestu háskóla heims og undanfarin tíu ár sams konar lista yfir framúrskarandi háskóla innan fræðasviða náttúruvísinda, lífvísinda, læknavísinda, verkfræði og félagsvísinda. Listarnir byggjast á óháðu mati þar sem meðal annars til er horft til birtingar vísindagreina í virtum fræðitímaritum, fjölda tilvitnana annarra vísindamanna í rannsóknir á vegum hvers skóla, frammistöðu háskóla út frá starfsmannafjölda og fjölda starfsmanna sem hjóta vísindaverðlaun fyrir framlag sitt innan einstakra fræðagreina. 

Mat ShanghaiRanking Consultancy í ár nær til 54 fræðigreina og um 1.700 háskóla um allan heim. Sem fyrr segir er Háskóli Íslands í 6. sæti yfir fremstu háskóla heims á sviði fjarkönnunar en fræðigreinin snýst um að safna og vinna upplýsingar úr myndgögnum um yfirborð jarðar sem fengin eru úr myndum frá drónum, flugvélum og gervitunglum. Fjarkönnun er mjög mikilvægt svið fyrir Íslendinga, þar sem unnið er þvert á fræðigreinar, og nýtist m.a. til þess að fylgjast með áhrifum eldgosa og þeim öru breytingum sem eru að verða í heiminum samfara hlýnun jarðar, svo sem hopun jökla, skógareldum og breytingum í heimshöfunum. 

Háskóli Íslands er enn fremur í 76.-100. sæti á sviði jarðvísinda samkvæmt Shanghai-listanum og í 100.-150. sæti innan hjúkrunarfræði. Enn fremur raðast skólinn í sæti 151-200 innan lífvísinda og þá er hann í hópi 300 bestu á sviði landfræði, 400 bestu á sviði líffræði mannsins, loftslagsvísinda, klínískrar læknisfræði og lýðheilsuvísinda og 500 bestu innan eðlisfræði og vistfræði.

Listi ShanghaiRanking Consultancy er annar af tveimur virtustu og áhrifamestu matslistum yfir bestu háskólana heims, en hinn er Times Higher Education World University Rankings. Háskóli Íslands hefur verið á þeim síðarnefnda allt frá árinu 2011. 

Lista ShanghaiRanking Consultancy yfir bestu háskóla heims í einstökum fræðigreinum og upplýsingar um grundvöll matsins má nálgast á heimasíðu ShanghaiRanking Consultancy.

Fjöll og jöklar