Skip to main content

Sögukennsla

Sögukennsla

Hugvísindasvið

Sögukennsla

MA – 120 einingar

Meistaranám í sögukennslu er tveggja ára nám á framhaldsstigi sem er ætlað að veita nemendum dýpri skilning á sagnfræði og auk þess öðlast nemendur kennsluréttindi.

Námið er sniðið að nemendum sem hafa lokið BA námi í sagnfræði.

Skipulag náms

X

Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 1 (SFG105F)

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu. Starfsþjálfun á haustmisseri er tengd námskeiðinu Inngangi að kennslufræði og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

X

Inngangur að kennslufræði framhaldsskóla (KEN104F)

Markmið námskeiðsins er að nemendur öðlist innsýn inn í íslenskar og alþjóðlegar rannsóknir og kenningar á sviði skólastarfs. Meginviðfangsefni námskeiðs eru kenningar um og rannsóknir á námi, samskiptum og kennsluháttum. Einnig eru kenningar um og rannsóknir á starfi og fagmennsku kennara, svo og lagaákvæði, siðareglur og þess háttar, meðal meginviðfangsefna námskeiðsins.

Við val viðfangsefna og skipulag námskeiðsins er tekið mið af því að meginstarfsvettvangur þeirra sem taka námskeiðið verður í framhaldsskóla.

X

Kenningar í hugvísindum (FOR709F)

Námskeiðinu er ætlað að breikka og dýpka þekkingu nemenda á kenningum í hugvísindum og að veita þeim innsýn í ólík kennileg sjónarmið og aðferðir sem efst eru á baugi í fræðunum. Í námskeiðinu verða kynntar og ræddar valdar kenningar sem hafa sett mark sitt á fræðilega umræðu í hugvísindum síðustu áratugi, samhliða því sem nemendum verður kennt að beita þeim á eigin rannsóknir.

X

Kennsla samfélagsgreina og vettvangsnám 2 (SFG206F)

Nemendur kynnast kennsluaðferðum, verkefnagerð og námsmati í samfélagsgreinum og nokkrum greinum hugvísinda, að frátöldum íslensku og námi í erlendum tungumálum, og eru þjálfaðir í að ígrunda eigin afstöðu til náms og kennslu. Verkefni í námskeiðinu eru samþætt vettvangsnámi. Lögð er áhersla á mikilvægi ígrundunar fyrir verðandi kennara. Því er gert ráð fyrir að þátttakendur ígrundi, þrói og dýpki hugmyndir sínar um nám og kennslu í samfélagsgreinum og verði þannig betur í stakk búnir til að kenna sínar greinar og til þess að halda áfram að þróast sem kennarar.

Innan námskeiðsins kynnast nemendur umgjörð og innra starfi skóla. Auk þess fá nemendur nokkra þjálfun í kennslu sinnar greinar. Starfsþjálfun fer fram í framhaldsskólum með megináherslu á faggreinakennslu og tekur mið af starfstíma framhaldsskóla. Gert er ráð fyrir umtalsverðri viðveru nemenda í skólum. Starfsþjálfun er skipulögð í samstarfi við valda skóla og felst m.a. í þátttöku í almennu skólastarfi, aðstoð við kennslu og æfingakennslu.

Starfsþjálfun á vormisseri er tengd námskeiðinu Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum og skal þetta námskeið því tekið samhliða því.

X

Námskrá og skólaþróun í framhaldsskólum (KEN213F)

Í námskeiðinu er fjallað um námskrárfræði og menntastefnu með áherslu á námskrár, nemendur og þróunarstarf í framhaldsskólum.

Viðfangsefnum í námskeiðinu er ætlað að þjálfa fagmannlegt verklag við mótun menntastefnu, námskrárgerð og skólaþróun í framhaldsskólum á Íslandi. 

X

Nýjar rannsóknir í sagnfræði (SAG201F)

Í námskeiðinu verða lesnar þekktar sagnfræðilegar rannsóknir úr vestrænni menningarsögu sem fjalla um margvísleg efni sem hafa verið ofarlega á baugi innan fagsins. Gerð verður tilraun til að sýna hvernig sagnfræðingar, bæði í lok tuttugustu aldar og í upphafi tuttugustu og fyrstu aldar, glíma við ólík efni í rannsóknum sínum. Umfjöllunin verður sett í hugmyndafræðilegt samhengi og lögð verður áhersla á að sýna fram á ólík gímutök sagnfræðinga þegar viðfangsefnið hefur tengst áðurnefndu fræðasviði. Reynt var að velja áhugaverðar bækur sem eru líklegar til að gefa okkur áhugaverða mynd af stöðu sagnfræðinnar í dag.

X

Endalok kalda stríðsins? Átök austurs og vesturs, 1979-2022 (SAG415M)

Í námskeiðinu verður farið yfir þróun og umbreytingu hugmyndafræðilegra og pólitískra átaka milli austurs og vesturs frá árinu 1979, þegar kalda stríðið tók á sig nýja mynd, og fram til samtímans. Nemendur kanna hvernig hugmyndafræði mótaði samskipti, átök og samvinnu stórveldanna á síðustu árum kalda stríðsins og eftir hrun Sovétríkjanna. Sérstök áhersla er lögð á lok kalda stríðsins, áhrif umbóta Gotbatsjovs, fall Sovétríkjanna, og hvernig hugmyndafræðileg spenna hefur haldið áfram í samskiptum Rússlands, Bandaríkjanna, Kína og Evrópu á tuttugustu og fyrstu öldinni. 

X

Kvennabarátta og femínismi í sögulegu ljósi (SAG416M)

Í samfélagi samtímans, þar sem bakslag hefur orðið í réttindamálum ýmissa hópa, og sums staðar gengið á áður fengin réttindi kvenna, er mikilvægt að þekkja stöðu kvenna og sögu kvennabaráttunnar frá upphafi þess tímabils sem kallað er nútími (1750/1800). Í námskeiðinu verður fjallað um hugmyndir um réttindi kvenna frá 18. öld (og eftir atvikum fyrr) til síðari hluta 20. aldar, hverjir settu þær fram og hvernig. Fjallað verður um baráttu kvenna (og karla) fyrir jafnrétti, um þá áfanga sem náðust  og þær hindranir sem konur mættu.  Sjónum verður beint að hugtökum á borð við femínisma (sem varð ekki til fyrr en undir lok 19. aldar) og mismunandi birtingarmyndum hans. Einnig kvennahreyfingu, en fræðimenn á sviði kvenna- og kynjasögu hafa í auknum mæli gagnrýnt ríkjandi skilgreiningar og spurt hvaða hreyfingar séu þess verðugar að fá pláss í stórsögu kvennasögunnar. Í þessu samhengi verður rætt um (ó)gagnsemi bylgjukenningarinnar svokölluðu, að líkja kvennahreyfingum við sjávarföllin þar sem verður flóð og fjara: fyrsta bylgja femínisma/kvenréttinda, önnur bylgja o.s.frv. Þótt hinn vestræni heimur sé þungamiðja námskeiðsins verður leitast við að flétta inn öðrum heimshlutum og einnig íslensku sjónarhorni þar sem það á við.

X

Handverk, handiðnaður og hugarfar á 18. og 19. öld – tíska, textílar og fatagerð á Íslandi (SAG417M)

Markmið námskeiðsins er að taka fyrir fatagerð og tísku landsmanna á 18. og 19. öld og skoða í margvíslegu ljósi. Fléttað verður saman rannsóknum á handverki út frá fjölbreyttum heimildum við hugarfar og samfélagsgerð á 18. og 19. öld og skoðaðar þær breytingar sem voru að verða í samfélaginu á Íslandi og tengslunum við Danmörku. Lestrarefnið verður bæði fræðirit og frumheimildir, innlent og erlent. Leitast verður við að tengja nýjar rannsóknir við notkun bæði prentaðra frumheimilda og heimilda af skjalasöfnum og minjasöfnum. Vettvangsferðir verða mikilvægur hluti námskeiðsins og beinar rannsóknir á varðveittum fatnaði og greiningu á honum. Á undanförnum árum hefur aðgengi að gögnum stóraukist með aukinni heimildaútgáfu og vefbirtingu frumheimilda frá 18. öld. Snar þáttur er að nemendur verði sjálfbjarga í að rata um heimildaforða tímabilsins, geti afmarkað rannsókn á þessu sviði og leitað nýrrar þekkingar.

X

Rannsóknarverkefni í sagnfræði vegna MA-ritgerðar (SAG704F)

Rannsóknarverkefni vegna MA-ritgerðar er undanfari að ritgerðinni sjálfri. Nemandi vinnur að rannsóknaráætlun í samráði við leiðbeinanda sinn. Í verkefninu er lýst markmiðum og aðferð, niðurskipan efnis og helstu heimildum sem unnið verður með. Æskilegt er að einnig fylgi drög að nokkrum blaðsíðum af eiginlegum texta. Hámarkslengd er 5000 orð. Að verkefni loknu tekur nemandi til við frekari rannsóknir og skrifar ritgerðina. Námsbraut í sagnfræði annast mánaðarlega málstofu fyrir nemendur sem eru skráðir í Rannsóknarverkefni þar sem nemendum gefst færi á að bera saman bækur sínar og stilla strengi. Umsjón með málstofunni hefur fastráðinn kennari við námsbrautina. Ekki er gefin einkunn heldur lýkur verkefninu með umsögninni „staðið“ eða „fallið“. Leiðbeinandi og umsjónarmaður ákveða niðurstöðuna í sameiningu.

X

Utanríkisstefna Bandaríkjanna: Forræði, hugmyndafræði og alþjóðakerfið, 1945–2026 (SAG511M)

Fjallað verður um bandaríska utanríkistefnu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Sjónum verður beint að stöðu Bandaríkjanna í alþjóðakerfinu, pólitískum gildum, hervaldi, menningu og samfélagi.  Einnig verða greindar margvíslegar birtingarmyndir bandaríska heimsveldisins og viðbrögð annarra ríkja við hugmyndafræði og forræði Bandaríkjanna í alþjóðamálum. Áhersla verður á stefnumál forseta frá Franklin D. Roosevelt til Donalds Trumps sem og á landfræðipólitíska nálgun eins og samskipti Bandaríkjanna við Evrópu, Asíu og Afríku – og einstök ríki eins og Sovétríkin/Rússland, Bretland, Þýskaland, Frakkland, Japan, Víetnam, Kína og Suður-Afríku – á tímabili kalda stríðsins og eftir að því lauk. Utanríkisstefna Bandaríkjanna verður sett í hugmyndafræðilegt samhengi við lýðræði, kapítalisma, kommúnisma/and-kommúnisma, mannréttindi, valdboðsstefnu, heimsvaldastefnu, popúlisma, kynþætti og kynþáttahyggju, kynjahlutverk, alþjóðalög, alþjóðastofnanir og svæðisbundin bandalög. Enn fremur verður fjallað um bandaríska orðræðu um hervald og beitingu þess, eins og í Víetnamstríðinu, í stríðunum í fyrrverandi Júgóslavíu, „stríðinu gegn hryðjuverkum“ og hernaðinum í Afganistan, Írak, Líbíu og Sýrlandi Úkraínu og Palestínu. Loks verður vikið að hugmyndum um hnignun Bandaríkjanna sem heimsveldis og þær settar í samhengi við vöxt og viðgang Kína og samkeppni ríkjanna á alþjóðavettvangi. Einnig verður vikið að tilraunum Bandaríkjastjórnar til að draga úr vægi þess alþjóðakerfis sem það kom á fót eftir síðari heimsstyrjöld og ásælast ríki eins og Grænland og Kanada. Stuðst verður við margvíslegar kenningar og hugtök í sagnfræði, alþjóðastjórnmálum og menningarsögu í greiningu á viðfangsefninu.

X

Einsögur um fátækt, tilfinningar og fötlun (SAG512M)

Námskeiðinu er ætlað að vera í fyrsta lagi mjög hagnýt yfirferð um helstu heimildaflokka opinberra heimilda sem eru varðveittar á skjalasöfnum og eru aðgengilegar á rafrænu formi.  Allir flokkarnir hafa sína kosti og galla. Heimildirnar urðu til innan einhvers konar stjórnsýslu og markmið þeirra var að safna saman upplýsingum um það „þýði“ (e. population) sem er undir, varðveita það og nýta upplýsingarnar til að styrkja stjórnsýsluna og „búa til“ þær staðreyndir, sem hún þurfti á að halda til að viðhalda sér.  Í öðru lagi er námskeiðið kynning á þeirri þróun sem hefur orðið í aðferðafræði einsögunnar í nýjum íslenskum rannsóknum í sagnfræði. Hér er um að ræða nýtt sjónarhorn á því sem hefur verið nefnt einvæðing sögunnar. Í þriðja lagi verður námskeiðið kynning á því hvernig hægt er að greina tilfinningar einstaklinga í fortíðinni í gegnum opinberar heimildir og hvernig hugmyndafræði sögu tilfinninganna nýtist í þeim greiningum og nýrri samþættingu á kenningum um fátækt og fötlun í fortíðinni með sérstakri áherslu á kynjafræðileg sjónarhorn.

X

Einstaklingsverkefni A (SAG014FSAG604F)

Ekki má taka meira en 20e í einstaklingsverkefnum. Heimilt er að taka tvö 10e verkefni. Í samráði við kennara á M.A.-stigi velur nemandi sér verkefni til úrlausnar. Umsjónarkennara er heimilt að fela öðrum kennara í greininni að hafa verkstjórn með verkefninu. Sem dæmi um verkefni má nefna samningu kennsluefnis, samningu yfirlitsrits í sagnfræði, gerð fræðilegrar bókaskrár í sagnfræði, útgáfustarfsemi og verkefni, sem veita nemendum þjálfun fyrir störf á skjalasöfnum.

X

Norðurheimur á miðöldum (SAG716M)

Sögulegt yfirlit og saga rannsóknarhefðar um valin þemu norrænna miðalda, með áherslu á Ísland og Noreg frá víkingaöld fram til fjórtándu aldar. Þemu telja, m.a.: vald, konungur og ríki; lög og fæðardeilur; kyngervi, mægðir og félagstengsl; trú og hugarfar; kristnitaka, kristni og kirkja; efnahagur. Grunnþekking í atburðasögu tímabilsins er hjálpleg en ekki skilyrði.

X

Meistararitgerð í sögukennslu (SAG442L)

.

Öll fög eru skyldufög nemaVValfagBBundið val er háð skilyrðum ENámskeiðið er ekki kennt á misserinuNámsleiðin í Kennsluskrá

Hafðu samband

Þjónustuborð Hugvísindasviðs
s.525 4400 hug@hi.is.
Opið virka daga frá kl 10:00–12:00 og 13:00–15:00.

3. hæð Aðalbyggingar.
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík.

Nemendur á Hugvísindasviði geta einnig nýtt sér þjónustuborð á Háskólatorgi.

Fylgstu með Hugvísindasviði

 Instagram   Youtube 
 Facebook

Aðalbygging Háskóla Íslands

Hjálplegt efni

Ertu með fleiri spurningar? Hér finnurðu svör við ýmsum þeirra og upplýsingar um ýmislegt annað sem gott er að hafa í huga þegar þú velur nám.