Skip to main content

Doktorsvörn í heimspeki: Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson

Doktorsvörn í heimspeki: Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
23. febrúar 2024 11:00 til 13:30
Hvar 

Aðalbygging

Hátíðasal

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Föstudaginn 23. febrúar fer fram doktorsvörn við Deild heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði Háskóla Íslands. Þá ver Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson doktorsritgerð sína í heimspeki, Sense and testimony: Speech and empathy on the margins of worlds.

Vörnin fer fram í Hátíðasal í Aðalbyggingu Háskóla Íslands og hefst kl. 11:00.

Andmælendur við vörnina verða Darian Meacham, dósent í heimspeki við Maastricht Háskólann í Hollandi og Komarine Romdenh-Romulc, dósent í heimspeki við Háskólann í Sheffield í Bretlandi.

Doktorsritgerðin var unnin undir leiðsögn Björns Þorsteinssonar, prófessors í heimspeki við Háskóla Íslands. Einnig voru í doktorsnefnd Finnur Dellsén, prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands og  Sara Heinämaa, prófessor í heimspeki við Háskólann í Helsinki í Finnlandi.

Sverrir Jakobsson, forseti Deildar heimspeki, sagnfræði og fornleifafræði, stjórnar athöfninni.

Um rannsóknina

Í doktorsritgerð þessari er tekist á við eðli samskiptavandamála með verkfærum félagsþekkingarfræði og fyrirbærafræði. Sjónum er beint sérstaklega að tengslum frásagnar og samkenndar og hvaða takmörkunum við erum háð þegar við reynum að koma orðum að reynslu okkar þvert á lífheima. Lykilatriði sem greint er í ritgerðinni er það hvernig þau sem jaðarsett eru í samfélaginu lenda ítrekað í að tjáningu þeirra á reynslu sinni er tekið sem vitnisburði fremur en frásögn. Þetta er ólíkt því sem við eigum að venjast í hversdagslegum samskiptum okkar, þar sem við iðulega segjum frá og okkur er trúað. Þessa tilhneigingu í orðræðu okkar kallar höfundur vitnisburðarvæðingu frásagnarinnar. Í ritgerðinni eru færð rök fyrir því að með því að dýpka skilning okkar á eðli frásagnarinnar getum við betur forðast óréttmæta vitnisburðarvæðingu.

Um doktorsefnið

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson er með BA-próf í heimspeki frá Háskóla Íslands og MA-próf í heimspeki með sérhæfingu í fyrirbærafræði og heimspeki hugans frá Kaupmannahafnarháskóla. 

Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson.

Doktorsvörn í heimspeki: Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson