Skip to main content
20. nóvember 2018

Prófaumhverfi í Háskóla Íslands bylt á næstu misserum

""

Stefnt er að því  að allt prófhald við Háskóla Íslands verði rafrænt innan nokkurra ára með tilkomu nýs prófakerfis sem skólinn er nú að innleiða og hefur reynst afar vel víða á Norðurlöndum.

Þeir sem eldri eru muna eflaust margir eftir puðinu sem fylgdi því að koma sem mestu frá sér með blýanti eða penna á prófblöðin með tilheyrandi stressi og verkjum í skrifhandleggnum. Þessi tilfinning ætti brátt að heyra sögunni til innan Háskólans með tilkomu rafræna prófakerfisins Inspera sem hægt verður að nota innan allra deilda skólans.    

„Háskóli Íslands er meðal frumkvöðla í rafrænu prófahaldi hér á landi og hefur boðið upp á rafræn próf í einhverri mynd í um tuttugu ár. Það hefur hins vegar orðið geysileg framþróun í hönnun rafrænna prófakerfa undanfarin þrjú til fjögur ár sem gerir okkur kleift að innleiða rafrænt prófahald fyrir allan skólann,“ segir Hreinn Pálsson, prófstjóri Háskóla Íslands. 

Hreinn segir að í leit sinni að hentugu prófakerfi fyrir Háskóla Íslands hafi starfshópur innan skólans fljótlega beint sjónum sínum að hinum norrænu ríkjunum en þau virðist standa einna fremst í rafrænu prófhaldi. „Niðurstaða hópsins var að Inspera-prófakerfið væri okkar vænlegasti kostur. Það getur þjónað ólíkum þörfum mismunandi deilda skólans, það býður á 20 mismunandi tegundir spurninga og getur haldið utan um verkefnaskil og próf af fjölbreyttu tagi. Þá nýtist kerfið vel fyrir fjarpróf og allar úrlausnir skila sér inn strax til yfirferðar hjá kennara óháð því hvar próf er tekið. Þá hefur kerfið verið tekið upp í fjölmörgum háskólum á Norðurlöndum og gefist þar vel,“ segir Hreinn um nokkra af kostum forritsins. Hann bætir við að unnið sé að því að tengja Inspera og Uglu, innri vef skólans, þannig að heiti námskeiða, nemenda og einkunnir flæði á milli kerfanna.

„Nemendur skrá sig inn á tiltekna slóð og taka próf í aðgengilegu og einföldu viðmóti. Umhverfi Inspera er læst sem þýðir að að ekki er hægt að vafra um Netið en þó getur kennari skilgreint hvaða forrit eða vefsíður nemendur mega nálgast í prófinu,“ segir Hreinn Pálsson prófstjóri.

Nemendur geta tekið próf í Inspera í tölvuverum HÍ eða á eigin tölvu, hvort sem er heima eða á prófstað. „Nemendur skrá sig inn á tiltekna slóð og taka próf í aðgengilegu og einföldu viðmóti. Umhverfi Inspera er læst sem þýðir að að ekki er hægt að vafra um Netið en þó getur kennari skilgreint hvaða forrit eða vefsíður nemendur mega nálgast í prófinu,“ segir Hreinn. 

Innleiðing kerfisins felur líka í sér fjárhagslegan og umhverfislegan ávinning fyrir skólann því hætt verður að ljósrita prófverkefni og prenta þar til gerðar prófbækur, sem nemendur hafa skrifað svör sín í hingað til, verða óþarfar. 

Nú þegar hafa nokkur próf farið fram í Inspera innan skólans og hefur framkvæmdin gengið vel. Hreinn segir innleiðinguna þó taka nokkur misseri. „Háskólinn í Bergen, sem er svipaður af stærð og Háskóli Íslands, hóf sína innleiðingu vorið 2015 með 5% notkun. Á haustmisseri sama árs stökk notkun upp í 48% og á vormisseri 2017 var hún komin upp í 67%,“ segir Hreinn og bætir við: „Innan fárra ára verður það að þreyta skriflegt próf með handskrifæri að vopni vonandi hluti af þeim úrræðum sem bjóðast þeim nemendum sem glíma við tölvuhömlun.“

Nemendur í Háskóla Íslands fyrr og nú