Skip to main content
9. mars 2022

Heimspekilegar hugvekjur gegn matarsóun

 Heimspekilegar hugvekjur gegn matarsóun - á vefsíðu Háskóla Íslands

„Verkefnið er innlegg í orðræðuna um matarsóun og er hugsað sem hvatning fyrir almenning að skoða sína eigin matarhegðun. Ég kalla Matarsófíunar hugvekjur og vonast til þess að þær verði einmitt til þess að vekja fólk til þess að horfa á hlut eins og mat, sem er svo samtvinnaður lífi manns, á annan hátt,“ segir Rakel Jónsdóttir,  útskrifaður menningarmiðlari frá Háskóla Íslands og sjálfstætt starfandi kvikmyndagerðarkona, um útvarpsþætti sem hún vann með stuðningi Nýsköpunarsjóðs námsmanna í fyrrasumar. Rakel er meðal þátttakenda á Hugvísindaþingi sem fram fer í Háskóla Íslands dagana 11. og 12. mars.

Þættirnir Matasófíur voru fluttir á Rás 1 í desember síðastliðnum og í þeim segist Rakel skoða tengsl manns við mat á ólíkum söguskeiðum og spegla þau við orðræðu samtímans. „Leitast er við að koma með annars konar nálgun á málefni sem varða matarsóun, fæðuöryggi og virðingu gagnvart mat. Verkefnið er því eins konar tilraun til þess að bregðast við því ástandi sem við stöndum frammi fyrir í dag og vera um leið eins konar hugvekja fyrir fólk til þess að horfa í eigin barm og skoða sína eigin matarhegðun og þær tengingar sem það hefur við mat.“

Hægfara breytingar yfirvalda og vanmáttarkennd almennings

Mikil umræða hefur verið um matarsóun undanfarin ár og samkvæmt skýrslu íslenskra stjórnvalda um aðgerðaáætlun gegn matarsóun, sem kom út í fyrra, er áætlað yfir yfir 30% af þeim mat sem framleiddur er í heiminum nýtist ekki sem skyldi og endi í ruslinu. Rakel bendir á að fjöldi vísindalegra gagna sýni mikilvægi þess að endurhugsa matvælakerfið á róttækan hátt. „Í þessu verkefni var matur hins vegar rannsakaður og skoðaður á huglægari hátt og leitast við að vekja hjá hlustendum hugrenningartengsl,“ segir hún enn fremur. 

Hugmyndin að þáttunum kviknaði þegar Rakel vann að meistaraverkefni sínu í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands en því lauk hún fyrir um ári. Í lokaverkefninu rýndi hún í möguleika svokallaðs borgarbúskapar sem snýst um að nýta auð eða vannýtt rými innan borgarmarka til matvælaframleiðslu, ýmist utan- eða innandyra. 

„Í því ferli mátti sjá að þrátt fyrir þau fræðilegu gögn sem liggja fyrir í tengslum við málefni er varða matarsóun og fæðuöryggi þá eru breytingar að hálfu yfirvalda hægfara og auk þess má greina ákveðið aðgerðarleysi og jafnvel vanmáttakennd hjá almenningi. Ég ritaði niður í þessu ferli á blað orðin „matarsóun“ og „nihilismi“ og út frá því hóf ég að rannsaka tengsl manns við mat í þessu samhengi. Ég leitaðist eftir því að horfa á mat líkt og hann væri tungumál, sem hann vissulega er að einhverju leyti, og í því samhengi að greina orðræðuna sem er í gangi og hvað hún endurspeglaði um tíðarandann. Ég skoðaði þannig hvaða aðrar leiðir væri mögulega hægt að fara til þess að bregðast við þessu ástandi, hvernig hægt er að nálgast þessi vandamál á tilfinningalegan hátt,“ útskýrir Rakel.  

„Það er þörf á heildrænni lausnum til þess að bregðast við þeim vanda sem samfélög heimsins standa frammi fyrir hvað varðar fæðuöryggi og matarsóun en þessi mál tengjast líka loftslagsvánni og umhverfisvernd. Matur einhvern veginn tengir þetta allt saman og í raun öll dýr, mennsk og ómennsk. Þar með gæti hann mögulega einnig verið leiðin til þess að bregðast við þessum vandamálum sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ útskýrir Rakel. MYND/Kristinn Ingvarsson

Heimspekitextar skoðaðir með matargleraugum

Í rannsóknarvinnu sinni í tengslum við gerð þáttanna kafaði Rakel ofan hugtakið matur og skoðaði tengsl mannsins við mat út frá sögulegu, menningarlegu og tilfinningalegu sjónarhorni. „Það mætti segja að ég hafi skoðað heimspekitexta með matargleraugum en vestræn heimspeki hefur að vissu leyti sniðgengið þetta viðfangsefni auk annarra sem tengjast líkamlegum kenndum of mikið. Ég beindi sjónum mínum að listrænum leiðum til þess að skapa annars konar hugrenningartengsl hjá almenningi,“ segir Rakel sem eins og áður segir naut stuðnings Nýsköpunarsjóðs námsmanna við vinnuna, en sjóðurinn styrkir háskólanema til sumarstarfa við rannsóknir. 

Sumarliði R. Ísleifsson, lektor og umsjónarmaður meistaranáms í hagnýtri menningarmiðlun, var leiðbeinandi hennar í verkinu ásamt Valdimar Tr. Hafstein, prófessor í þjóðfræði, og Þorgerði E. Sigurðardóttur, dagskrárgerðarkonu á Rás 1. 

„Viðmælendur mínir í þáttunum voru tveir. Annars vegar var rætt við Kjartan Óla Guðmundsson matreiðslumann, matarhugsuð og vöruhönnuð og hins vegar við Elínu Margot sem er frönsk/íslensk listakona sem stendur fyrir Mál/tíð sem er vettvangur fyrir listræna viðburði sem fjalla um mat á nýstárlegan hátt,“ segir Rakel enn fremur um þáttaröðina sem má nálgast á vef RÚV.

Matur nátengdur loftslagsvánni og umhverfisvernd

Flest hugsum við mikið um mat og á hverjum degi tökum við ákvarðanir um það bæði hvað við borðum og hversu mikið af því. Matur er enda forsenda fyrir því að við höldum lífi. Markmið Rakelar er að fá okkur til að hugsa um matinn á annan hátt því öllum þurfum við að leggja okkar af mörkum til að draga úr matarsóun og um leið stuðla að sjálfbærari og umhverfisvænni heimi, eins og hún undirstrikar. 

„Það er erfitt að horfa á eitthvað, sem er það tengt okkar daglega lífi á annan hátt, sem eitthvað fyrirbæri sem verið er að rannsaka. En það er, held ég, mikilvægt í þessu samhengi til þess að búa til nýjar tengingar, nýtt hegðunarmunstur og til þess að skapa nýjar venjur í kringum mat sem gæti haft jákvæð áhrif. Það er þörf á heildrænni lausnum til þess að bregðast við þeim vanda sem samfélög heimsins standa frammi fyrir hvað varðar fæðuöryggi og matarsóun en þessi mál tengjast líka loftslagsvánni og umhverfisvernd. Matur einhvern veginn tengir þetta allt saman og í raun öll dýr, mennsk og ómennsk. Þar með gæti hann mögulega einnig verið leiðin til þess að bregðast við þessum vandamálum sem við stöndum frammi fyrir í dag,“ útskýrir Rakel.

Óhætt er að segja matur skipi stóran sess í ekki bara lífi heldur störfum Rakelar því hún vinnur nú að því að ljúka við heimildarmynd um borgarbúskap sem hún lagði drög að í meistaranámi sínu í hagnýtri menningarmiðlun. Auk þess er hún nú í meistaranámi í þjóðfræði við Háskóla Íslands þar sem hún heldur áfram að kafa ofan í heim matar og matarmenningar í meistararannsókn sinni. Við þetta má bæta að Rakel mun fjalla um Matarsófíur sínar á Hugvísindaþingi sem fer fram 11. og 12. mars í Háskóla Íslands.

Rakel Jónsdóttir