Skip to main content
14. september 2018

Danskur sendilektor og farkennarar til Íslands

Á þessu skólaári verður Martin Reng danskur sendilektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Hlutverk sendilektors er fyrst og fremst að vinna að talþjálfun kennaranema til að auka færni þeirra í dönsku talmáli. Að auki tekur sendilektor þátt í að skipuleggja og framkvæma kennslu og námskeið fyrir dönskukennara á grunn- og framhaldsskólastigi.

Einnig hefur á vegum Menntavísindasviðs verið ráðnir tveir farkennarar, þeir Mette Munksgaard og Annemette Erichsen. Í starfi sinu leggja þeir áherslu á hinn munnlega þátt þannig að nemendur geti nýtt sér kosti þess að hafa kennara sem hefur dönsku að móðurmáli. Farkennarar skipuleggja jafnframt stutt námskeið fyrir íslenska kennara á þeim stöðum sem þeir eru sendir til starfa. Mette mun vinna á höfuðborgarsvæðinu en Annemette mun starfa á Ísafirði og Akureyri.  

Sendilektor og farkennarar eru hluti af samstarfsverkefni milli mennta- og menntamálaráðuneytisins og danska menntamálaráðuneytisins.

Hópurinn fyrir utan húsnæði Menntavísindasviðs í Stakkahlíð. Á myndinni eru frá vinstri: Á myndinni eru:  Michael Dal, dósent við Menntavísindasvið,  Martin Reng, sendilektor, Mette Munksgaard, farkennari, Annemette Eirichsen, farkennari og Kolbrún Pálsdóttir, forseti Menntavísindasvið