
-English below-
Nemendum Háskóla Íslands býðst að sækja um átta vikna sumarnám International Honors Program (IHP) við Stanford háskóla í Kaliforníu sem haldið verður frá 24. júní til 20. ágúst 2023.
Stanford og Háskóli Íslands undirrituðu samning um sumarnám árið 2010 og síðan þá hefur hópur nemenda HÍ farið til Stanford á sumri hverju og kynnst einstöku háskóla- og vísindasamfélagi í einum virtasta háskóla heims. Námsdvöl við Stanford getur nýst þeim vel sem stefna á framhaldsnám í Bandaríkjunum.
Sumarnámið við Stanford er opið öllum skráðum nemendum Háskóla Íslands í grunn- og meistaranámi sem hafa lokið a.m.k. einu námsári (60 ECTS) áður en sumarnámið hefst með meðaleinkunn að lágmarki 7,5.
Í boði er fjölbreytt úrval námskeiða, en nemendur þurfa að velja a.m.k. 8 Stanford einingar (12 ECTS) sem þeir geta sótt um að fá metnar inn á námsferil sinn í Háskóla Íslands. Nemendur Háskóla Íslands eru undanþegnir kröfum um TOEFL próf, en verða að hafa mjög góða enskukunnáttu.
Á grundvelli samnings Stanford og Háskóla Íslands greiða nemendur HÍ 20% lægri skólagjöld sem eru 8205 USD fyrir nemendur í grunnnámi. Auk þess greiða nemendur um 4800 USD fyrir húsnæði og fæði á skólavist. Skólagjöld eru hærri fyrir meistaranema.
Umsóknarferlið er tvíþætt. Nemendur senda fyrst umsókn til Háskóla Íslands. Sérstök valnefnd metur umsækjendur á grundvelli námsárangurs, meðmæla, framtíðaráforma og viðtals og velur hóp nemenda sem tilnefndir eru til Stanford. Tilnefndir nemendur senda síðan inn umsókn með námskeiðsvali til Stanford.
Sótt er um rafrænt, en fylgigögnum (á ensku) skal skila í umslagi merktu „Stanford 2023“ á Þjónustuborð, Háskólatorgi í síðasta lagi fyrir lokun mánudaginn 16. janúar, 2023.
Ekki er tekið við síðbúnum umsóknum.
Fylgigögn (á ensku)
1. Kynningarbréf (e. personal statement), hámark 600 orð
2. Staðfest námsferilsyfirlit ásamt árangursröðun (e. ranking) – fæst á Þjónustuborði á Háskólatorgi
3. Tvenn meðmæli, a.m.k. önnur frá kennara við deild umsækjanda (í lokuðu umslagi eða send beint til Alþjóðasviðs)
Frekari upplýsingar má nálgast hjá Alþjóðasviði á ask@hi.is eða s. 525 4311.
Umsóknarfrestur er 16. janúar 2023
------
Summer at Stanford University 2023
University of Iceland students will have the opportunity to participate in the 8-week International Honors Program (IHP) at Stanford University from June 24 to August 20, 2023.
A group of students from the University of Iceland has participated in the summer program at Stanford since 2010, when an agreement was first established between Stanford University and the University of Iceland. This is a unique opportunity for UI students to study at one of the leading universities in the world. The IHP Program can come to good use when applying for further studies.
Undergraduate and Master´s students from all disciplines, who have completed at least one academic year (60 ECTS) at UI at the start of the summer program with a minimum GPA of 7.5 are eligible to apply. Students can select from a variety of courses and must enroll in at least 8 Stanford units (12 ECTS) that can be transferred to UI. Students at the University of Iceland are exempt from submitting TOEFL scores but must be completely fluent in English.
All nominated UI students will receive a 20% discount of the tuition fees. Tuition (including the discount), for the IHP total approximately 8205 USD (for undergraduate students). Students pay other fees (room and board) for the amount of approximately 4800 USD. Tuition fees are higher for master‘s students.
Please note that this is a two-step application process. Students first apply to the University of Iceland, where a selection committee evaluates their academic achievements, letters of recommendation, future plans and an interview. Selected students are then nominated to Stanford and proceed with the Stanford application process.
Students fill out an online application, and submit supporting documents (in English) in an envelope labeled “Stanford 2023” to the Service Desk, University Center before closing on Monday, January 16, 2023. Applications received after the deadline will not be accepted.
Supporting documents (in English)
1. Personal statement (max 600 words)
2. Official transcript with ranking - available at the Service Desk, University Centre
3. Two letters of recommendation, one of which must be from a teacher at the student’s faculty (in a sealed envelope or sent directly to the International Division)
For further information, please contact the UI International Division at ask@hi.is or 525 4311
The application deadline is January 16, 2023