Skip to main content

Ný Saga - Staða framkvæmda og fréttir

Ný Saga - Staða framkvæmda og fréttir - á vefsíðu Háskóla Íslands

Fyrirhugað er að Menntavísindasvið Háskóla Íslands flytji árið 2024 í Sögu við Hagatorg þar sem áður var Hótel Saga. Í dag fer starfsemi Menntavísindasviðs fram í Stakkahlíð, Skipholti og í Laugardal. Verkefnið er að sameina starfsemi Menntavísindasviðs undir sama þak á háskólasvæði HÍ.Með flutningnum skapast betri skilyrði til þéttara samstarfs við önnur fræðasvið HÍ. Áhersla í háskóla- og vísindastarfi í dag eru þverfræðilegar rannsóknir og samstarf og ýtir flutningur Menntavísindasviðs undir rannsóknarsamstarf um viðfangsefni sem fræðafólk sviðsins sinnir. Starfshópur um flutning Menntavísindasviðs er starfandi og vinnur að þarfagreiningu fyrir starfsemi sviðsins í Sögu með hliðsjón af framtíðarsýn um starfsemi sviðsins. Þá er hópnum ætlað að vera rektor og stjórnendum skólans ráðgefandi varðandi tækifæri og áskoranir við flutning starfseminnar í Sögu.

Framkvæmdir á húsinu hófust snemma árs 2022 og er framkvæmdatími flutninga áætlaður frá janúar 2022 og fram á vor 2024 þegar fyrirhugað er að Menntavísindasvið taki húsnæðið í notkun.

Markmið þessarar síðu er að miðla fréttum af framkvæmdum í Sögu og undirbúningi fyrir flutninga Menntavísindasviðs.

""
""
""
""
""
""
""
""
""
""
6. hæð Saga, sunnanmegin. Mynd tekin 23.febrúar 2023.
6. hæð, norðanmegin í hluta Félagsstofnunar stúdenta. Mynd tekin 23.febrúar 2023.
5. hæð Saga, sunnanmegin. Mynd tekin 23.febrúar 2023.
5. hæð Saga, sunnanmegin. Mynd tekin 23.febrúar 2023.