Skip to main content

Pælt í PISA - Farsæld, félagshæfni og viðhorf nemenda

Pælt í PISA - Farsæld, félagshæfni og viðhorf nemenda - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
28. febrúar 2024 15:00 til 16:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

Stofa H- 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Pælt í PISA - Farsæld, félagshæfni og viðhorf nemenda er heiti þriðja fundar af sjö þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 28. febrúar kl. 15-16:30 í Stakkahlíð, H-101. Hægt er að fylgjast með fundinum hér á Zoom

Á þessum fundi verður rýnt í farsæld, félagshæfni og viðhorf nemenda í tengslum við niðurstöður PISA 2022. 

Unnur Guðnadóttir, sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneytinu: Niðurstöður PISA um líðan nemenda í skóla
Ragný Þóra Guðjohnsen, lektor og faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar: Niðurstöður rannsókna um félags- og tilfinningafærni nemenda
Salvör Nordal, umboðsmaður barna: Réttur barna til menntunar
Pallborð með fyrirlesurum og ungmennaráði SAMFÉS. Fundarstjóri og stjórnandi umræðna er Kolbrún Þorbjörg Pálsdóttir, forseti Menntavísindasvið HÍ.

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt.

--

PÆLT Í PISA - Dagskrá framundan:

Þriðjudagur 5. mars 2024 - Greining á stöðu læsis á náttúruvísindi

Þriðjudagur 12. mars 2024 - Rýnt í svör skólastjórnenda

Fimmtudagurinn 21. mars 2024 - Samstarf heimila og skóla

Fimmtudaginn 4. apríl - Menntakerfið og ójöfnuður

--

Um PISA

Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2022. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti (frestaðist um eitt ár vegna Covid) og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.