Skip to main content

Pælt í PISA - Rýnt í svör skólastjórnenda

Pælt í PISA - Rýnt í svör skólastjórnenda - á vefsíðu Háskóla Íslands
Hvenær 
12. mars 2024 15:00 til 16:30
Hvar 

Stakkahlíð / Háteigsvegur

H - 101

Nánar 
Aðgangur ókeypis

Pælt í PISA - Rýnt í svör skólastjórnenda er heiti fimmta fundar af sjö þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 12. mars kl. 15-16:30 í Stakkahlíð. Hægt verður að fylgjast með fundinum á Zoom hér.

Á þessum fimmta fundi verður rýnt í svör skólastjórnenda í tengslum við niðurstöður PISA 2022. 

Anna Kristín Sigurðardóttir, prófessor við Menntavísindasvið HÍ, Berglind Gísladóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ og Jón Páll Haraldsson skólastjóri Laugalækjarskóla rýna í niðurstöður. Umræður verða í kjölfarið. Fundarstjóri verður Ómar Örn Magnússon, skólastjóri Hagaskóla.

Alls verða haldnir sjö fundir á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, nýrrar stofnunar sem kemur í stað Menntamálastofnunar, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt.

--

PÆLT Í PISA - Dagskrá framundan:

Fimmtudagurinn 21. mars 2024 - Samstarf heimila og skóla

Fimmtudaginn 4. apríl - Menntakerfið og ójöfnuður

--

Um PISA

Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2022. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti (frestaðist um eitt ár vegna Covid) og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.