Hvenær
4. apríl 2024
15:00 til 16:30
Hvar

Stakkahlíð / Háteigsvegur

H - 101

Nánar
  • Aðgangur ókeypis
  • Bæta við í dagatal

    Pælt í PISA - Menntakerfið og ójöfnuður er heiti sjöunda og þar með síðasta fundar þessarar fundaraðar þar sem markmiðið er að kafa dýpra í niðurstöður PISA-rannsóknarinnar 2022. Fundurinn fer fram 4. apríl kl. 15-16:30 í Stakkahlíð.

    Fundinum verður streymt á Zoom hér.

    Á þessum sjöunda fundi verður menntakerfið og ójöfnuður rætt í tengslum við niðurstöður PISA 2022.

    David Reimer, prófessor við Háskóla Íslands og Helgi Eiríkur Eyjólfsson,sérfræðingur hjá mennta- og barnamálaráðuneyti rýna í niðurstöður.

    Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra flytur ávarp og fulltrúar Sambands íslenskra framhaldsskólanema taka til máls.

    Fundarstjóri: Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

    Umræður verða í kjölfarið.

    Fundurinn er sjöundi og sá síðasti af þeim málstofum sem haldnar hafa verið á vegum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, Mennta- og barnamálaráðuneytis, Menntamálastofnun, Kennarasambands Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla.

    Verið öll velkomin meðan húsrúm leyfir. Fundunum verður streymt.

    --

    Um PISA

    Menntamálastofnun sá um framkvæmd PISA-rannsóknarinnar sem lögð var fyrir alla nemendur í 10. bekk vorið 2022. Samstarf hefur verið milli Menntavísindasviðs og Menntamálastofnunar um greiningu gagnanna og túlkun niðurstaðanna.

    PISA-rannsóknin er lögð fyrir í 72 löndum um heim allan. Könnuð er frammistaða nemenda í stærðfræðilæsi, lesskilningi og náttúrulæsi. Könnunin er framkvæmd á þriggja ára fresti (frestaðist um eitt ár vegna Covid) og gefur vísbendingar um breytingar á frammistöðu nemenda yfir tíma ásamt því að meta stöðu þeirra við lok skyldunáms.

    1920_KRI_haskilinn_190402_002.jpg
    Efnisorð
    Ábyrgðaraðili

    Deila

    Í Háskóla Íslands er allt sorp flokkað, upplýsingar má finna á flokkun.hi.is Háskóli Íslands hefur það að markmiði að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif sín, við hvetjum gesti skólans til að ferðast þangað með vistvænum hætti. Við Háskóla Íslands í Vatnsmýri stoppa strætisvagnar 1, 6, 3 og 12. Vagnar 11 og 15 stoppa einnig nálægt. Ferðumst með vistvænum hætti!

    Var efnið hjálplegt?

    Hvers vegna var efnið ekki hjálplegt?

    Takmarkað við 250 stafabil