Skip to main content
28. nóvember 2022

Úkraínuverkefni HÍ hefst á kvikmyndasýningu

Úkraínuverkefni HÍ hefst á kvikmyndasýningu - á vefsíðu Háskóla Íslands

Heimildarmyndin Brostin bönd eftir Andrei Loshak verður sýnd í Veröld á vegum Úkraínuverkefnis Háskóla Íslands, þriðjudaginn 29. nóvember kl. 18.00. Sýningin er fyrsti viðburður Úkraínuverkefnisins, en markmið þess er að auka þekkingu og skilning á Úkraínu í íslensku samfélagi, m.a. með því að skipuleggja viðburði fyrir almenning. Sérstök áhersla verður lögð á menningarlíf, sögu, fjölmiðla og stjórnmál. Stuðlað verður að því að byggja upp tengsl við þann stóra hóp fólks sem komið hefur hingað frá Úkraínu og við aðila, hérlendis sem erlendis, sem hafa góða þekkingu á málefnum Úkraínu. Verkefnið heyrir undir rannsóknarsetrið EDDU við Háskóla Íslands og mun starfa með Vigdísarstofnun og Alþjóðamálastofnun. Umsjón með því hafa Jón Ólafsson prófessor og Helga Brekkan verkefnastjóri.

Staðið verður fyrir viðburðum á borð við kvikmyndasýningar og fyrirlestra. Í tengslum við viðburðina verður haldið úti hlaðvarpi og verða þættirnir birtir á heimasíðu verkefnisins (sem er væntanleg). Þar verður einnig að finna upplýsingar um sögu Úkraínu, bókmenntir og kvikmyndir sem og um fjölmiðla. Meðal þess efnis sem fjallað verður um á viðburðum Úkraínuverkefnisins má nefna fjölmiðla og áróður, misnotkun sögunnar, konur í stríði og bókmenntir svo að dæmi séu tekin. Til stendur að sýna kvikmyndir frá og um Úkraínu og bjóða úkraínskum rithöfundum, kvikmyndaleikstjórum og fræðafólki að taka þátt í verkefninu.

Myndin Brostin bönd fjallar um það hvernig stríðið kom ekki aðeins til Úkraínu heldur hélt innreið sína í rússneskar fjölskyldur. Rætt er við fólk sem upplifað hefur upplausn fjölskyldu- og vinasambanda vegna ólíkra viðhorfa til innrásar Rússa í Úkraínu. Eftir kvikmyndasýninguna fara fram umræður með spurningum frá áhorfendum. Þátttakendur í pallboði verða: Natasha S., ljóðskáld og starfsmaður Rauða krossins á Íslandi, Yulia Zhatkina, markaðsráðgjafi og sálfræðingur, og kvikmyndagerðarkonan Anastasia Bortuali. Aðgangur er ókeypis. Sjá viðburð á Facebook.

Helga Brekkan og Jón Ólafsson