Skip to main content
8. september 2021

HÍ og Alvotech standa saman að fundaröð um nýsköpun og atvinnulíf

HÍ og Alvotech standa saman að fundaröð um nýsköpun og atvinnulíf - á vefsíðu Háskóla Íslands

Alvotech og Háskóli Íslands hleypa af stokkunum nýrri fundaröð um samstarf vísindasamfélags og atvinnulífs fimmtudaginn 9. september með þátttöku framúrskarandi vísindamanna og sérfræðinga í fremstu röð. Á fyrsta fundinum verður áhersla á tækifæri sem felast í líftækni fyrir íslenskt samfélag. 

Fundaröðin sem nefnist „Framtíð nýsköpunar - Hvernig vísindasamfélagið og atvinnulífið geta skapað verðmæti saman“ og mun standa yfir í vetur með þátttöku fleiri aðila.

Fyrsti viðburðurinn verður sem fyrr segir þann 9. september kl. 13-16 í Hátíðasal Háskóla Íslands og er hann haldinn í samstarfi við Aztiq, Vísindagarða Háskóla Íslands og Sænsk-íslenska viðskiptaráðið. Hann ber yfirskriftina „Líftækni: Mikilvægi tengsla rannsókna og atvinnulífs“ og eins og nafnið bendir til verður áherslan á rannsóknir og þróun líftæknilyfja ásamt þeim tækifærum og ávinningi sem liggur í nánu samstarfi vísindasamfélagsins og atvinnulífsins. Til máls tekur fjölbreyttur hópur innlendra og erlendra fræðimanna og frumkvöðla sem eiga það sameiginlegt að vera í fremstu röð í heiminum á sviði líftækni og vísindarannsókna.

Fjöldi gesta í sal er takmarkaður vegna sóttvarna en viðburðurinn verður í beinu streymi.

Dagskrá viðburðarins

Viðburðurinn fer fram á ensku.

Nánar um fyrirlestraröðina

Samstarf Háskóla Íslands og Alvotech

Háskóli Íslands, Vísindagarðar skólans og Alvotech hafa átt í samstarfi frá árinu 2018 með það að markmiði að efla nýsköpun á sviði líftækni og styðja betur við grunnrannsóknir með áherslu á að mennta fleiri vísindamenn hér á landi. Á þessum árum hefur skapast þverfaglegt samstarf í kennslu, rannsóknum og nýsköpun sem hefur lagt grunn að uppbyggingu á nýjum atvinnugeira sem hefur mikla þýðingu, bæði efnahagslega og samfélagslega, fyrir Ísland. Hátæknisetur Alvotech í Vatnsmýri hýsir þessa uppbyggingu en setrið er jafnframt hluti af Vísindagörðum Háskóla Íslands. Líftæknilyf eru bylting í lyfjaþróun og eru lyf framtíðarinnar. Þau hafa gjörbylt meðferð gigtarsjúkdóma, krabbameins, Alzheimerssjúkdómsins og fleiri sjúkdóma.
 

Kona að vísindastörfum